ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég hef svarað svipaðri spurningu eða komið inn á svipað efni í ræðu áður. Ég hef því miður oft á tilfinningunni að mál sem tengjast innleiðingum og eiga upphaf sitt að rekja til EES-samningsins, Evrópusambandsins, virðast oft skauta létt í gegn. Það þarf ekki annað en að fara í gegnum það og skoða hvernig umræðum er háttað um flest þessi mál. Þetta er mikil færibandavinna og stimplun, því miður.
Ég veit ekki hvort menn reiknuðu með því að þetta færi í gegn með sambærilegum hætti. Maður fylgdist með úr fjarska þegar var verið að forma fyrirvara í tengslum við fyrstu lagasetninguna sem snerti á Icesave-ábyrgðum og þá var slíkt unnið með allt öðrum hætti en nú er verið að gera. (Forseti hringir.) Það var lagalegur fyrirvari (Forseti hringir.) sem var þá verið að smíða inn í frumvarp.