ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðuna. Ég var ánægður með ræðuna alla og í kaflanum þar sem hann kom inn á ástæður þess að menn hefðu áhyggjur af viðbrögðum Evrópusambandsins fór ég að hugsa um hræðsluáróðurinn sem var rekinn hér á landi í tengslum við Icesave-málið fyrir réttum tíu árum síðan. Menn töluðu um að Ísland yrði Kúba norðursins, einhver nefndi Norður-Kóreu og einhver fleiri af vansælustu svæðum þessa heims, að það væru örlögin sem biðu okkar. Mér hefur þótt hræðsluáróðurinn ekki vera kominn á þann stað enn þá í þessu máli, sem betur fer, en lengi skal manninn reyna, það er ekki öll nótt úti enn.
Mér hefur þótt býsna mörgum þykja það meginrök í málinu, kjarnaatriðið, að EES-samningurinn verði settur í hættu ef við bugtum okkur ekki og beygjum eins og kommissararnir óska. Hv. þingmaður kom að hluta til inn á þetta. Metur hann þróunina í röksemdafærslunni vera í þá átt að við eigum mögulega inni einhver komment sambærileg við Kúbu norðursins og Norður-Kóreu? Í álitsgerð Carls Baudenbachers t.d. er einn viðvörunartónn (Forseti hringir.) út í gegn sem virðist algjörlega á skjön við afstöðu hans sem kom fram í tengslum við Icesave-málið. Það (Forseti hringir.) er verið að setja upp einhverja sviðsmynd sem mér persónulega hugnast ekki. Hver er afstaða þingmannsins?