149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:33]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hef einmitt velt því fyrir mér hvers vegna menn keyra málið áfram með þessum hætti og leggja í þá vegferð að hræða þjóðina svolítið til hlýðni í þessu máli, sem mér finnst vera mjög dapurlegt. Höfum það í huga að sú álitsgerð sem utanríkisráðuneytið kaupir af fyrrverandi dómara EFTA-dómstólsins — sem er í sjálfu sér bara verktaki sem selur sína vinnu, það er ekkert óalgengt þegar menn hafa gegnt svona stöðum, sérstaklega í Bandaríkjunum, þeir selja þjónustu sína með þessum hætti — er lögfræðileg. Hún er ekki pólitísk. Þess vegna tel ég að við þurfum ekki að hafa miklar áhyggjur af því. Það er alveg ljóst í mínum huga að Evrópusambandið þarf jafn mikið á EES-samningnum að halda og við. Þeir munu ekki stofna honum í einhverja sérstaka hættu, þeir munu ekki leggja í þá vegferð, vegna þess, eins og ég hef nefnt hér, að við eigum okkar dýrmætu hreinu orku sem liggur ekki á lausu í Evrópusambandinu, höfum það í huga. Það er alveg klárt mál að það er ástæða fyrir því að það er búið að teikna upp þennan sæstreng frá Íslandi til Evrópusambandsins. Hvaðan kemur frumkvæðið í þeim efnum? Það kemur frá Evrópusambandinu og að sjálfsögðu (Forseti hringir.) með samþykkt íslenskra stjórnvalda.

Hugmyndin og hugmyndafræðin er sú að fá þessa góðu hreinu orku (Forseti hringir.) frá Íslandi. Þeir munu að sjálfsögðu borga fyrir hana. Þeir munu borga það mikið (Forseti hringir.) að það verður freistandi fyrir okkur að selja. (Forseti hringir.) Þá mun raforkuverð til almennings í landinu og fyrirtækjanna hækka.