ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Hér hefur verið teflt fram þeim rökum að ástæðan fyrir því að þessi leið sé valin, þ.e. gallaða leiðin eða sú sem er ekki gallalaus fremur en sú sem er lögformlega staðfest í EES-samningnum, sé sú að þetta hafi aldrei verið gert í 25 ára sögu samningsins.
En hvað erum við að gera hér? Hvað erum við búin að innleiða orkupakka þrjú oft í 25 ára sögu samningsins? Er sá samningur ekki lifandi skjal sem tekur breytingum? Er ekki óhætt að áætla að þrátt fyrir að það hafi ekki verið gert áður að senda málið aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar geti það ákvæði virkjast því sem næst hvenær sem ákvæði samningsins, ný eða gömul, eru til umræðu hér?