149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:05]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Jú, það er alveg rétt hjá hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni að síðari og síðri leiðin var valin. Í álitsgerð Stefáns Más Stefánssonar prófessors og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts leggja þeir til þá leið að þessu verði einfaldlega hafnað og hún send aftur í sameiginlegu nefndina og þess freistað að ná undanþágum. Það er enn tækifæri til þess og ég hvatti til þess í ræðu minni að málið færi þangað. Mér finnst það eðlilegt.

Við stöndum frammi fyrir mjög alvarlegum spurningum, herra forseti, og mér finnst alveg ótækt að við séum að gera þetta núna klukkan að ganga fjögur að nóttu. Margir þingmenn létu taka sig af mælendaskrá fyrr í kvöld. Þetta mál er órætt að miklu leyti.