ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir virkilega góða ræðu. Það er eiginlega synd að jafn efnisrík og góð ræða og þessi sé flutt að næturlagi þegar leiða má líkur að því að færri séu að fylgjast með en þegar dagsbirtu nýtur.
Það voru nokkur atriði í ræðu hv. þingmanns sem ég vildi gjarnan koma inn á. Þó eru tvö atriði sem ég hjó hvað mest eftir. Hv. þingmaður setti í sögulegt samhengi uppbyggingu Landsvirkjunar, raforkudreifikerfis og þar fram eftir götunum. Við sjáum og heyrum úti í samfélaginu að það eru miklar áhyggjur af þessu máli hjá almenningi. Ég velti fyrir mér hvort hluti af áhyggjum fólks sé ekki einmitt það sem virðist alltumlykjandi í þróun þessa markaðar, að lokamarkmiðið sé það að Landsvirkjun verði ekki lengur í ríkiseigu. Slíkt markmið er auðvitað ekki skrifað inn í nokkurt plagg sem tengist orkupakka eitt, tvö, þrjú, fjögur eða fimm eða hvað þeir verða margir, en slíkt markmið getur verið undirliggjandi lengi og jafnt og þétt geta verið tekin smáskref í átt að því.
Mig langar að heyra afstöðu hv. þingmanns til þess hvort hann telji þetta (Forseti hringir.) geta verið hluta af því að andstaða almennings við þetta mál er svona einörð.