149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:18]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann fór vel yfir þessa fyrirvara sem ég er alveg sammála um að þegar á reynir koma þeir ekki til með að halda nokkurn skapaðan hlut vegna þess að það er bara ein leið. Hún er í gegnum sameiginlegu EES-nefndina.

Mig langaði aðeins að koma inn á eitt, það er þessi sameiginlega yfirlýsing EFTA-ríkjanna. Hún er líka dæmi um eitthvað sem hefur enga þýðingu vegna þess að auðvitað hefði Evrópusambandið átt að vera með í þeirri yfirlýsingu. Það er bara annar samningsaðilinn með í þeirri yfirlýsingu. Þessi vinnubrögð eru mjög einkennileg. Þetta einkennist af hroðvirkni og einhverju stressi, að nú sé þetta að bresta á, þetta sé að koma loksins í þingið og þá verðum við (Forseti hringir.) að hafa einhverjar yfirlýsingar sem koma svo ekki til með að halda nokkurn skapaðan hlut.