ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Nú reiknast mér til að tveir tímar séu síðan hv. þm. Óli Björn Kárason kom hingað í pontu og sagði að hann teldi að þetta mál yrði útrætt eftir um 90 mínútur, eftir einn og hálfan tíma. Nú eru liðnir tveir tímar og það hefur fækkað um einn á mælendaskrá síðan þetta var. Það skýrist fyrst og fremst af því að stjórnarliðar hafa tekið sig af mælendaskrá.
Í því ljósi og í ljósi ummæla hæstv. hæstv. forseta á tólfta tímanum er staða okkar í Miðflokknum sú að við þurfum að fara að láta fólk, sem var upplýst um að umræðu yrði frestað og henni haldið áfram síðar, vita af því að það þurfi að mæta hingað aftur til að koma þeim sjónarmiðum á framfæri sem það vildi koma á framfæri. Þannig að nú verð ég aftur að spyrja hæstv. forseta, tveimur tímum seinna eftir að talið var að þetta mál (Forseti hringir.) myndi klárast á 90 mínútum: Hvert er planið?