149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:24]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil taka undir það sem hér hefur verið sagt og verð að lýsa miklum vonbrigðum með hæstv. forseta, að hann skuli ekki standa við orð sín. Hann sagði að þessu myndi nú fara að ljúka fljótlega, og þá var klukkan bara um hálftólf, held ég. Þess vegna vekur það undrun mína að hann skuli halda áfram með þennan fund.

Við erum nú að reyna að myndast við að bæta virðingu Alþingis. Þeir sem heima sitja — það eru sjálfsagt einhverjir sem eru að fylgjast með, sjá það hér að hæstv. forseti stendur ekki við orð sín. Það finnst mér mjög dapurlegt vegna þess að ég þekki hæstv. forseta að góðu einu og tel hann mjög þægilegan og góðan í öllum samskiptum. (Forseti hringir.) Þannig að þessi viðbrögð, herra forseti, hvað fundarstjórn yðar varðar koma mér verulega á óvart.