ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég get ekki annað en byrjað ræðu mína á að gera mjög alvarlegar athugasemdir við einstaklega sérkennilegar yfirlýsingar hæstv. forseta áður en hann kynnti mig hingað í ræðustól. Í fyrsta lagi staðfesti hæstv. forseti að það hefur ekkert verið að marka það sem hann sagði fyrr í kvöld og í öðru lagi var ekki annað að heyra á hæstv. forseta en að hann ætlaðist til þess að hv. þingmenn Miðflokksins hættu að ræða þetta mál. Ég þarf þá væntanlega ekki að spyrja aftur spurningarinnar sem ég spurði áðan um það hvort hæstv. forseti stjórnaði raunverulega þessum fundum eða ekki. En ég á svo sannarlega eftir að segja eitt og annað um þetta mál, hæstv. forseti, og það getur tekið sinn tíma.
Ég ætla að byrja á því að ræða aðeins um enn eitt misræmið í málflutningi stjórnarmeirihlutans um málið. Það felst í þeirri fullyrðingu sem við höfum heyrt aftur og aftur, bæði í þingsal og í almennri umræðu, að í rauninni hafi þetta mál engin áhrif. Augljóst er hversu undarlegt það er að fullyrða slíkt í ljósi þess hversu mikið kapp stjórnarmeirihlutinn leggur á að koma þessu máli í gegn að því marki að hæstv. forseti virðist ekki einu sinni hafa stjórn á fundum þingsins og vera gert að láta umræðu fara fram í skjóli nætur. En svo sjáum við líka fjölmargar yfirlýsingar sem staðfesta að jú, þetta hafi einmitt töluverð áhrif.
Ég nefni sem dæmi yfirlýsingar forstjóra Landsvirkjunar, Harðar Árnasonar, sem heldur því fram, hefur gert bæði í fjölmiðlum og fyrir nefnd að mér skilst, að verði þriðji orkupakkinn ekki samþykktur muni það veikja samningsstöðu fyrirtækisins gagnvart viðskiptavinum þess, álframleiðendum. Hvernig er hægt að túlka þau orð öðruvísi en svo að forstjórinn geri sér grein fyrir því að afleiðing af samþykki þessa orkupakka verði að landið verði tengt raforkumarkaði Evrópu með sæstreng og þar með bjóðist fyrirtækjum að selja orkuna á hærra verði? Það er a.m.k. ljóst af yfirlýsingu forstjóra Landsvirkjunar að það hefur áhrif að samþykkja þennan orkupakka. Svoleiðis að fullyrðingar um að þetta breyti í rauninni engu eru enn á ný sýndar vera ósannar.
En um leið er ríkisstjórnin, eða stjórnarmeirihlutinn og stuðningsflokkar hans, að leggja fram frumvarp um að breyta eðli Orkustofnunar sem lið í þeirri innleiðingu. Í ljósi þess að lagt er fram frumvarp sem á að breyta eðli Orkustofnunar til að laga hana að regluverki þriðja orkupakkans er ákaflega undarlegt að reyna á sama tíma að halda því fram að áhrifin séu engin.
Skoðum þetta tiltekna dæmi fyrir sig, breytingar á eðli Orkustofnunar. Út á hvað gengur það? Það gengur út á að stofnunin heyri ekki lengur með sama hætti undir lýðræðislega kjörna fulltrúa, þar með heyri ekki lengur undir kjósendur í landinu, almenning. Hvers vegna er það? Það þarf ekki annað en að líta í reglur Evrópusambandsins um hlutverk orkustofnana ríkjanna samkvæmt þriðja orkupakkanum sem þá skulu frjálsar frá hinum lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum í hverju landi, svoleiðis að þær stofnanir geti lotið boðvaldi, tekið við drögum, framfylgt vilja ACER, orkustofnunar Evrópusambandsins.
Þegar stjórnarmeirihlutinn og stuðningsflokkar hans leyfa sér að halda því fram að þetta hafi engin raunveruleg áhrif á sama tíma og þeir leggja fram frumvarp til að innleiða mjög raunveruleg áhrif þá sýnir það okkur auðvitað enn eitt dæmið um það að (Forseti hringir.) yfirlýsingar tengdar þessu máli standast enga skoðun.