149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:48]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir ræðuna. Mig langar til að halda aðeins áfram með þetta málefni, samspil ESA og ACER, og tengja það aðeins inn á þetta 25 ára mál, sem má alls ekki koma nálægt af því að það hefur aldrei gerst áður.

Í reglugerðinni er beinlínis kveðið á um að ESA og ACER eigi í mjög nánu samstarfi og því er gert skóna að það sé grunnurinn að þessu tveggja stoða kerfi. Í álitsgerð Stefáns og Friðriks, títtnefndra, segir að þrátt fyrir að valdið sé þannig formlega hjá ESA sé ljóst að ACER muni hafa mikið að segja um efni ákvarðana sem ESA tekur á grundvelli reglugerðarinnar, enda semji ACER drög að ákvörðunum og leggur þau fyrir ESA. Það má því velta fyrir sér hvort ákvörðunarvaldið sé í raun hjá ACER. Og enn fremur segir að þessar stofnanir skuli vinna mjög náið saman þegar kemur að þessum álitaefnum. En síðar í þessari álitsgerð er sagt um það ef ágreiningur er uppi, með leyfi forseta:

„Skulu stofnanirnar þá leitast við að leysa ágreininginn en ella er unnt að vísa málinu til sameiginlegu EES-nefndarinnar til umfjöllunar.“

Er það ekki í samræmi við EES-samninginn? Þarna er í lagi að gera það en alls ekki núna? Er þetta ekki eitthvað furðulegt? Ég skil ferilinn eins og hann er settur fram hér, en ég skil ekki hvað menn óttast við að taka þetta mál sem hér um ræðir og vísa því til sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem við höfum þó fulla aðkomu að málum. Ég næ bara því ekki. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sama sinnis.