ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni aftur. Ég held að stutta svarið við því sé: Nei. Ég tel það ekki trúverðugt. Í þessum hópi eru nefnilega þingmenn sem ég þekki af því að vera afar ötulir baráttumenn. Þeir hafa ekki látið sitt eftir liggja þegar málefni sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur viljað berjast fyrir eru undir. Þeir hafa ekki látið sitt eftir liggja þegar að því kemur.
Það er einmitt það sem vekur athygli að þeir hafa hér um bil verið þögulir í þessari umræðu. Nánast eins og að þeim hafi verið sagt að halda sig til hlés eða þá að þeim stendur hreinlega ekki hugur til þess að láta sjá sig mikið í þessari umræðu og styðja þingflokkinn sinn að máli í því að fara þessa leið sem að mínu áliti er meingölluð.