149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:25]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir fyrirspurnina. Ég er alveg sammála því að í þessu tilfelli er um að ræða meginlandshugmyndafræði Evrópusambandsins, þar sem aðstæður eru allt aðrar og gjörólíkar því sem hér er. Við höfum einmitt þess vegna farið yfir það hér í ræðum að Ísland er eyja norður í hafi. Hér er ýmislegt annað sem á ekki við og það hefur reynst átakalaust að sækja um undanþágur út af því sem ekki á við, til að mynda járnbrautir, skipaskurðir o.s.frv. Hér eru heldur ekki grunnvirki yfir landamæri og ef mönnum stæði hugur til þess að setja þessa fyrirvara, sem er nú orðið ljóst, væri þá ekki auðvelt að sækja um undanþágurnar fyrir því líka í sameiginlegu EES-nefndinni?

En þetta er einmitt stórt mál. Í Evrópu eru orkuverin að stórum hluta kjarnorka og jarðefnaeldsneyti og minna er um vatnsaflsvirkjanir, eða að menn nýti hauggas eða vindorku. Þar er staðan allt önnur. Þetta eru fyrirtæki sem að stærstum hluta til eru í einkaeigu og keppa á markaði innan þessa svæðis. En því er ekki svo farið á Íslandi og maður spyr sig: Er þá tilgangurinn sá að tengja okkur við þennan innri markað Evrópusambandsins? Ég held að það sé nokkuð ljóst að svo sé og ég held að það væri bara heiðarlegt (Forseti hringir.) af fólki að stíga hér fram og segja berum orðum að það vilji inn í Evrópusambandið.