ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það er eitt sem ég hefði áhuga á að fá álit á hjá hv. þingmanni. Það sem vekur náttúrlega sérstaklega athygli við þetta mál allt saman er hin ríka áhersla á að innleiða þennan orkupakka og þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð í þinginu og við höfum rætt, að hafa umræður fram undir morgun. Nú vantar klukkuna tuttugu mínútur í fimm að morgni og nefndarfundir hefjast klukkan hálfníu. Hér er verið að ræða mál sem varðar alla þjóðina, komandi kynslóðir, fram undir morgun. Þetta eru mjög einkennileg vinnubrögð, herra forseti, vægast sagt.
Annað sem er athyglisvert er afstaða meiri hluta stuðningsmanna ríkisstjórnarflokkanna. Við sjáum að um 80% landsmanna eru andvíg því að aukið vald yfir orkumálum á Íslandi verði fært til Evrópu. Andstaðan er mesti í Sjálfstæðisflokki, eða 92%. Rúm 88% Framsóknarmanna eru málinu andvíg og 86% Vinstri grænna. Samt skal málið barið í gegn.
Ég held satt best að segja, herra forseti, að formenn þessara stjórnmálaflokka átti sig ekki alveg á því hvað þeir eru að gera og hvaða afleiðingar það getur haft fyrir þá stjórnmálaflokka að keyra mál í gegn (Forseti hringir.) sem mætir verulega mikilli andstöðu.
Það væri gott að heyra frá hv. þingmanni (Forseti hringir.) hvað hann haldi að liggi að baki því að keyra málið í gegn í allri þessari andstöðu við það.