ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er alveg sammála því sem hann sagði um gríðarlega andstöðu innan þessara flokka, í grasrót flokkanna, og aðferðafræði stjórnmálaflokkanna við að keyra þetta mál í gegn þvert á þá andstöðu og án þess að hlusta á grasrótina. Ég held að flokkarnir geri sér ekki almennilega grein fyrir því hvað þeir eru að gera þjóðinni og sjálfum sér sem stjórnmálaöflum.
Ég nefni Framsóknarflokkinn sem dæmi. Ég hef tekið eftir því að hann hefur haldið sig mjög til hlés í umræðunni. Ég nefni líka sem dæmi að fyrrverandi þingmaður flokksins, Frosti Sigurjónsson, er og hefur verið ötull baráttumaður gegn innleiðingu þessa orkupakka og hefur nú skipulagt undirskriftasöfnun þar sem skorað er á þingmenn að hafna honum. Ég held að hann og fleiri aðilar sem stóðu að undirskriftasöfnuninni hafi einmitt afhent þingforseta þær undirskriftir í vikunni. Það sýnir að veruleg andstaða er innan þessara flokka gagnvart málinu. Engu að síður er það keyrt áfram og þá er ég hjartanlega sammála hv. þingmanni um að þarna er eitthvað sem hefur ekki komið fram, sem vekur upp ýmsar spurningar um hvort það séu þarna einhverjir hagsmunir sem ríkisstjórnarflokkarnir viti af og (Forseti hringir.) vilja helst ekki koma á framfæri. Þetta eru allt vangaveltur sem eiga alveg rétt á sér.