149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:53]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að sú kenning sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson setti hér fram hljómar býsna trúverðug. Ég verð að viðurkenna að þegar ég reyndi að svara spurningu úr fyrra andsvari þá var ég nú bara horfa til fjárhagslegra hagsmuna í viðskiptum. En það er auðvitað augljóst að þeir eru fleiri þarna undir, hagsmunirnir, og þeir eru auðvitað stjórnmálalegir og snúa að yfirráðum yfir og stjórn á þessum þáttum í Noregi allt eins og hér. Ég myndi halda að allir ærlegir Norðmenn ættu að taka því fagnandi að þessi leið opnaðist aftur í ljósi þess hvernig umræðan hefur verið um þá átta fyrirvara sem Verkamannaflokkurinn, ef ég man rétt, hafði forgöngu um eða gerði kröfu um að yrðu settir inn og menn hafa síðan misst tiltrú á að nokkurt hald verði í.

Það slær mig þannig að frændur okkar Norðmenn myndu fagna. Eins og þekkt er þá er embættismannakerfið þar mjög bjagað til þeirrar áttar, skoðunar, að Noregur eigi að ganga í Evrópusambandið. Mikill munur er á því samkvæmt könnunum hvernig embættismenn svara samanborið við þjóðina í heild. Sá hópur myndi væntanlega gráta þetta en ég myndi halda að meiri hluti annarra frænda okkar í Noregi yrði (Forseti hringir.) býsna lukkulegur án þess að það hafi verið undirliggjandi markmið hvað afstöðu mína í málinu varðar.