149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:11]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Í ljósi orða hæstv. forseta ætla ég að forðast að fara í efnisleg svör við ræðu hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar en verð þó að geta þess að sú lausn sem hann nefnir er niðurstaða lögfræðilegrar álitsgerðar, eins og margoft hefur komið fram.

Ég verð að segja í tilefni af orðum hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að það hefur, að því er virðist, ekkert staðið í veginum fyrir því að hv. þingmenn Miðflokksins endurtækju sig hérna. Þeir hafa verið önnum kafnir við að koma í andsvör til þess að lýsa sig sammála ræðumanninum og hafa tekið undir hver með öðrum í allmörgum ræðum og andsvörum — og ánægjulegt að fylgjast með þeim samhug sem þar ríkir.

En ég veit ekkert hvort það gerir mikið fyrir umræðuna að hlusta á meira af því. Auðvitað verður málfrelsi þeirra ekki skert að því leyti. En ég velti fyrir mér hvort það þjóni einhverjum tilgangi fyrir umræðuna.