ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti vill upplýsa að haft hefur verið samband við hæstv. utanríkisráðherra. Hann er fara til útlanda í þessum töluðum orðum, eftir því sem við fáum upplýst, og á því ekki heimangengt. Það er farið að örla af degi og forseti hyggst gefa ræðumönnum kost á að flytja mál sitt áfram en við gerum okkur grein fyrir því að nefndafundir hefjast klukkan hálfníu. Það væri auðvitað freistandi að ætla að hægt væri að ljúka umræðunni fyrir þann tíma og ef vel er haldið á spilunum ætti að vera möguleiki til þess.