149. löggjafarþing — 105. fundur,  16. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðuna. Þessi ræða hæstv. fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar hafði farið fram hjá mér. Ég gæti nú þurft að fá stela blaðinu frá hv. þingmanni á eftir og lesa þetta aftur. Þessi kúvending, að því er virðist, hjá þessum öfluga stjórnmálamanni fær mig til að hugsa um — ég á mér fortíð í hinum ágæta Sjálfstæðisflokki þá veit ég að hv. þingmaður var áður í Framsóknarflokknum og þessi breytta afstaða formanns Sjálfstæðisflokksins orsakaði það að ég fór að hugsa um hvernig Framsóknarmenn stæðu núna.

Getur hv. þingmaður gert sér í hugarlund hvað orsakar það að flokkur, sem var jafn einarður á móti, samkvæmt því sem ég hef fylgst með, ávallt ályktað gegn innleiðingu sem þessari og nýlega hefur grasrót flokksins gert það á vettvangi sem ég kann ekki að nefna, en ég veit að það þótti mikilvæg ályktun? Á hv. þingmaður einhverja skýringu eða kenningu um hvað veldur þessari algjöru kúvendingu heils þingflokks? Mér er til efs að margir úr þingflokknum hafi talað fyrir innleiðingunni hér fyrir einhverjum misserum síðan, en þó er það auðvitað ekki útilokað.