ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Gefum okkur að raforkukerfi Evrópu og þar með talið Íslands yrði samtengt, þ.e. með sæstreng, eins og reyndar er í Evrópu í dag, það liggja sæstrengir í Norðursjó og milli Danmerkur og Noregs og þarna vítt og breitt yfir minni sund — og ef við bættumst þarna við með innleiðingu þessa regluverks sem við erum að ræða og innleiða er auðvitað stórhætta á því að við missum tökin á því. Auðvitað fer það eftir því hvaða ríkisstjórn er við völd o.s.frv. Það gætu komið kröfur um að stærri orkufyrirtæki yrðu hlutuð sundur og þá er stutt í að með innleiðingu þessa regluverks myndum við missa tökin á því.