ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Birgi Þórarinssyni. Auðvitað eru það mikilsverð rök, ef það er raunin sem Jón Baldvin Hannibalsson heldur fram. Ég hef tilhneigingu til að trúa því sem hann heldur fram varðandi EES-samninginn. Ég hugsa að það sé einfalt fyrir klára menn á þessu sviði að einfaldlega fletta þessu upp. Við þurfum þá ekkert að velkjast í vafa um þetta.
Ef það er svo að þetta var ekki í upphaflega samningnum, ekkert á þetta minnst, eru það auðvitað rök fyrir því að senda þetta inn í sameiginlegu nefndina aftur. Mjög veigamikil rök.
Það eru ekki síður veigamikil rök að við getum auðvitað bent á það að þetta er mjög mikilsverð og mikilvæg auðlind sem er í sameign þjóðarinnar og hefur verið það alveg frá því að við byrjuðum að virkja þessi stóru fallvötn.