149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

aðgerðir í loftslagsmálum.

[15:02]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Allar nýjustu rannsóknir sýna að mannkynið stendur vægast sagt á afdrifaríkum krossgötum. Þó að Ísland sé á margan hátt vel í sveit sett hvað varðar græna orkugjafa er meðallosun hvers Íslendings mikil, tvöföld á við hvern Evrópubúa. Rannsóknir sýna að kolefnisfótspor okkar er að aukast og losun gróðurhúsalofttegunda jókst um 2,2% við síðustu mælingar.

Við munum ekki geta mætt neinum alþjóðlegum skuldbindingum okkar nema með hröðum orkuskiptum, m.a. í samgöngum. Norðmenn eru komnir mun lengra í rafvæðingu samgangna. Þeir ausa fjármagni í þróunarverkefni og ætla innan skamms að fljúga með rafmagnsvélum. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur reiknast til að verja þurfi 2,5% af landsframleiðslu í loftslagsaðgerðir. Við eyðum 0,25% samkvæmt loftslagsáætlun.

Sé litið til umhverfismála í fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er einungis gert ráð fyrir 0,2% hækkun á framlögum. Það er ekki í samræmi við þær róttæku aðgerðir sem er nauðsynlegt að ráðast í ef Ísland á að halda vatni í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Undanfarna mánuði hefur ungt fólk og börn beinlínis öskrað á aðgerðir og það er mikil vitundarvakning í samfélaginu almennt, enda verður hættan augljósari með hverjum deginum sem líður.

Samfylkingin telur nauðsynlegt að ráðast í gerð græns samfélagssáttmála sem tekur á öllum þáttum þjóðlífsins. Spurningar mínar til hæstv. forsætisráðherra eru því sáraeinfaldar. Telur hún aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar ganga nógu langt? Telur hún að 6,8 milljarðar séu nægilegt fjármagn þegar litið er til þess að þörfin er, samkvæmt Sameinuðu þjóðunum, tíu sinnum meiri? Er þessi ríkisstjórn nógu hugrökk til að hækka kolefnisgjald á við það sem síðasta ríkisstjórn áformaði a.m.k. að gera? (Forseti hringir.) Og mun hæstv. forsætisráðherra líta til aðgerðaáætlunar Samfylkingarinnar sem gerir ráð fyrir grænum sáttmála sem nái til alls þjóðlífsins?