synjun landvistarleyfis.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir vekja máls á þessu. Ég þekki því miður ekki mál þessara einstaklinga sem um ræðir. En ég vil þó segja það að þegar útlendingalögin voru samþykkt hér á þingi á sínum tíma var það eftir mjög mikla samvinnu allra flokka. Þau voru samin í samráði allra flokka. Þáverandi hæstv. innanríkisráðherra mælti fyrir frumvarpinu en það var afrakstur slíkrar vinnu.
Ætlunin hefur verið að nefnd þingmanna allra flokka fari yfir framkvæmd laganna, þ.e. hvernig við teljum til hafa tekist, því vissulega að koma upp mörg mál sem ég get auðvitað ekki tjáð mig um. Ég þekki ekki smáatriði málsins sem hv. þingmaður nefnir. En ég tel hins vegar fyllstu ástæðu til þess að þingið láti sig það varða og fari yfir það og meti hvort það telji að framkvæmd laganna, sem samþykkt voru á sínum tíma eftir þetta mikla samráð, sé með þeim hætti sem þingið vill.
Mér er ekki nákvæmlega kunnugt um störf þessarar þingmannanefndar. En ég tel fyllstu ástæðu til þess og raunar tímabært að hún fari yfir þau mál sem hafa verið að koma upp, ýmist farið í fjölmiðla eða ekki, þar sem við teljum að skoða þurfi málsatvik betur. Það er auðvitað mikilvægt að framkvæmd laganna sé með þeim hætti sem þingið ætlaði sér og vissulega er það svo, eins og hv. þm. Inga Sæland nefnir, að mannúðarsjónarmið eiga þar að vera leiðarljós.
Ég get ekki tjáð mig um þetta einstaka mál en það er mikilvægt að þingið skoði hvernig það telur til hafa tekist með framkvæmd laganna.