149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

synjun landvistarleyfis.

[15:21]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Þetta sérstaka mál er opinbert af því að það kemur fram í fjölmiðlum. Ég veit ekkert meira en það sem maður þarf að lesa og það vekur með manni hálfgerðan óhug. Maður tekur það nærri sér að við skulum búa við það kerfi að þrátt fyrir að einstaklingar séu virkilega tilbúnir að leggja sig fram gangi hlutirnir ekki upp. Heimilisfaðirinn getur ekki unnið af því að hann er sjúklingur, konan vill vinna en í raun á að senda hana úr landi vegna þess að við — og okkur er í lófa lagið að breyta þessum reglum — komum í veg fyrir það með regluverkinu.

Það er það sem ég er að spyrja um. Ókei, frábær nefndin og allt það. Við vonum að hún skili sem bestum niðurstöðum en á meðan koma upp svona jaðartilvik sem okkur er í lófa lagið að girða fyrir. Það er það sem mig langaði til að fá fram hjá hæstv. forsætisráðherra, hvort það sé ekki í okkar valdi hér og nú, eitthvað sem við getum virkilega gert, að koma í veg fyrir að við þurfum að lesa svona sorglegar fréttir eins og mér þótti þessi frétt vera.