149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

synjun landvistarleyfis.

[15:23]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Hv. þingmaður spyr: Hvernig getum við brugðist við einstökum málum? Ég held að það sé mikilvægt, fyrst og fremst, að lögin séu þannig úr garði gerð að Alþingi sé sátt við framkvæmd þeirra. Við höfum dæmi sem hafa verið tekin upp í þingsal þar sem þingmenn hafa ekki verið sáttir við framkvæmd laganna eða túlkun þeirra. Þá er mikilvægt að farið sé yfir það og gerðar breytingar eftir því sem það kallar á. En við hljótum að ætlast til þess að lögin séu þannig úr garði gerð að framkvæmd þeirra sé með þeim hætti að þingið telji sig sátt.

Ég vísaði til þessarar þingmannanefndar áðan. Ég held að það sé líka mikilvægt að hún, í samvinnu við dómsmálaráðherra, fari yfir það nákvæmlega hvert hlutverk hennar er. Í stjórnarsáttmála er sérstaklega fjallað um að hún eigi að fara yfir framkvæmd laganna. Þó að þau hafi verið mjög vandlega unnin á sínum tíma þekkjum við að það koma upp vafamál eða túlkunaratriði og annað slíkt. Þá tel ég mjög mikilvægt að í þessu þverpólitíska samráði birtist vilji þingsins.