loftslagsmál og flug.
Hæstv. forseti. Loftslagsmálin og kolefnislosun í tengslum við umhverfisvernd hafa verið mikið í umræðunni nýverið og reyndar í ræðu hér rétt áðan. Nú hafa verið í sýningu á RÚV þættir sem bera nafnið „Hvað höfum við gert?“ og fjalla um loftslagsvána. Flutningaflug, farþega- og vöruflug, er snar þáttur í gjaldeyrisöflun Íslendinga og hefur reyndar borið uppi hagvöxt eftirhrunsáranna. Mikill fjöldi starfa hefur skapast, bæði beint og í afleiddum störfum. Komið er upp nýyrðið „flugviskubit“ þar sem fólk er spurt hvort það hafi flugviskubit, þ.e. samviskubit þegar það ferðast.
Fólk er hvatt til þess að draga úr flugferðum og þá kannski einkum og sér í lagi óþörfum flugferðum, sem er kannski ágætismál. En ég held að staðreyndin sé sú að fyrirtæki sem sinna þessum verkefnum, þ.e. flutningaflugi, séu mjög meðvituð um kolefnislosun og hafa unnið að því markvisst mjög lengi að minnka hana, bæði með breyttum starfsháttum sem og með tækninýjungum.
Mig langar til að beina einkum tveimur spurningum til hæstv. forsætisráðherra. Er það stefna íslenskra stjórnvalda að draga úr flugi til og frá Íslandi? Ef svo er, hvernig verður það þá gert?