loftslagsmál og flug.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin. Það er alveg rétt að þetta er svolítið erfitt mál vegna þess að þarna togast á hagsmunir sem kannski er erfitt að ná saman, að því er virðist í fyrstu.
Ég tel að það sé mikilvægt, þegar komist er að niðurstöðu í þessum málum, hvernig og hvenær sem það verður gert, að hafa í huga að við Íslendingar flytjum vissulega mikið af fólki og vörum á milli landa en við erum samt sem áður að gera það fyrir aðrar þjóðir um leið. Það er kannski ekki sanngjarnt að velta því yfir á okkur, að kolefnislosun sé okkar einvörðungu, ekki frekar en að kenna Bandaríkjamönnum um kolefnislosun fyrir þá sök eina að framleiða flugvélar eða þeim sem framleiða jarðefnaeldsneyti, að losunin sé þeim að kenna.
Fiskveiðar Íslendinga er annað dæmi um slíkt. Við veiðum gríðarlega mikið magn af fiski og framleiðum matvæli fyrir heiminn. Þrátt fyrir að umtalsverð losun fylgi því að við framleiðum þessar máltíðir fyrir heiminn þarf samt sem áður að taka tillit til þess að (Forseti hringir.) það er í raun gert fyrir heiminn, ekki fyrir Íslendinga eina og sér.
Ég hvet ráðherra til að beita sér fyrir því að markaðurinn verði látinn ráða og að treysta markaðnum fyrir því að framleiða tækninýjungar sem koma í veg fyrir frekari losun.