umræðuhefð á þingi.
Virðulegi forseti. Mér var skapi næst að æpa innan úr sal: Hvað með Icesave? En ég ætla ekki að gera hv. fyrrverandi þingmanni það til geðs. (Gripið fram í.)
Hæstv. ráðherra sagði að fulltrúalýðræðið fæli í sér að við værum kjörin og fengjum ákveðið traust í því skjóli. Út frá kerfislegu sjónarmið er það alveg rétt. Það sem ég bendi hins vegar á er að við fáum ekki það traust. Við höfum ekki það traust og það er mjög langt síðan við höfðum það, alla vega frá því fyrir hrun. Okkur hefur aldrei tekist að öðlast aftur það traust sem þá fauk. Það þurfti hrunið til, að því er virtist. Því að fólk hafði ofboðslega mikla trú á okkur þar áður en missti trúna í hruninu og við höfum við ekki fengið traustið til baka.
Þrátt fyrir það hefur orðið þó nokkuð mikil nýliðun á Alþingi og heillangur tími hefur liðið. Samt kemur traustið ekki aftur.
Ég er alveg sammála hæstv. ráðherra í gagnrýni hennar á popúlismann. En hvað getum við sem erum ekki popúlistar, leyfi ég mér að fullyrða, gert til þess að bæta þetta traust? Það dugar ekki til að útskýra vantraustið, sem er svo yfirþyrmandi og svo viðloðandi.
Það sem ég myndi leggja til er að við hættum að skýla okkur á bak við það að okkur hafi verið falið eitthvert traust í gegnum kerfið sem við búum við. Við þurfum að sýna það í verki að við viljum ganga eins langt og við mögulega getum í að auka gegnsæi, auka samráð og láta valdið í hendurnar á þjóðinni þegar hún vill fá það. Það er það sem þarf til að auka traust á okkur, (Forseti hringir.) þ.e. að við sýnum þjóðinni að við treystum henni. Er það ekki?