149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

umræðuhefð á þingi.

[15:38]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég hefði getað sagt nákvæmlega það sama og hv. þingmaður sagði hér áðan um að með auknum upplýsingum og auknu gagnsæi muni traustið aukast. Ég get líka sagt það, af því að ég hef verið hér á þingi síðan 2007, að gagnsæið er orðið allt annað en það var þá, miklu meira. Upplýsingalögum hefur verið breytt einu sinni. Nú eru þau aftur í þinglegri meðferð til að auka gagnsæi. Stjórnvöld eru búin að gerbreyta aðferðum sínum þegar kemur að samráði við almenning um undirbúning frumvarpa og lagasetningar og reglugerða. Þetta hefur verið gert en á sama tíma hefur traustið ekkert aukist. (HHG: Af hverju?)

Þetta svar sem hv. þingmaður lagði hér fram, og ég hefði getað tekið undir, er augljóslega ekki svarið. Svarið er heldur ekki að skipta út fólki á nokkurra ára fresti því að eins og hv. þingmaður benti réttilega á þá hefur endurnýjun á Alþingi verið mjög mikil og hröð en það hefur ekki orðið til að auka traustið. Ég er samt ekki að mæla því bót að allir séu æviráðnir hér inn, ég held að það sé ekki svarið við þessu. Þetta snýst um stofnanabundið vantraust og þær aðferðir sem við höfum verið að nýta og talið að virkuðu virka ekki. Ég held að þetta kalli hreinlega á miklu yfirgripsmeiri umræðu, herra forseti, og afsakið tímann.