149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

staða Landsréttar.

[15:41]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Fyrir 69 dögum kvað Mannréttindadómstóll Evrópu upp þann úrskurð að íslenska ríkið hefði ekki fylgt lögum við skipan dómara við Landsrétt. Ekki þarf svo sem að hafa mörg orð um forsögu málsins. Það reginklúður fyrrverandi dómsmálaráðherra hefur verið rakið rækilega í þessum sal. En þeim mun mikilvægara er að hæstv. núverandi dómsmálaráðherra upplýsi þingmenn og almenning um stöðu málsins í dag og hvers sé að vænta í framtíðinni.

Í ljósi þess hversu handahófskenndur og lélegur undirbúningur fyrir dóminn virðist hafa verið áður en hann féll er nauðsynlegt að fá ítarlegar skýringar á þeirri vinnu sem nú á sér stað innan ráðuneytisins og innan dómstóla til að tryggja réttaröryggi Íslendinga.

Forseti. Það ferli sem dómsmál fara í þarf að hafa verið hafið yfir allan vafa. Sú keðja verður aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn og það er deginum ljósara að veikasti hlekkurinn er staða Landsréttar. Því er nauðsynlegt að fá að heyra frá hæstv. ráðherra hverjar fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar eru til þess að endurreisa traust þjóðarinnar þannig að dómskerfið okkar virki eins og til er ætlast.

Hvað stendur til að gera til að efla aftur traust á dómstólum landsins?

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvenær hyggst ríkisstjórnin senda beiðni um áfrýjun til yfirdeildar Mannréttindadómstólsins til Strassborgar? Samkvæmt ummælum ríkislögmanns í fjölmiðlum í byrjun mánaðarins átti það að gerast á næstu dögum. Í beinu framhaldi af því þarf að upplýsa hvaða hagsmunamat lá að baki sem kemst að þeirri niðurstöðu að frekari óvissa um framtíð Landsréttar muni leiða til betri niðurstöðu en að sætta sig við dóminn og fara að vinna úr þeirri stöðu sem skapaðist hér í mars.

Rétt er að hæstv. ráðherra upplýsi um plan B og reyndar líka plan C. Hvað á til bragðs að taka ef yfirdeildin ákveður hreinlega að taka málið ekki fyrir? Hver verða viðbrögð stjórnvalda ef málið verður tekið fyrir og niðurstaða dómstólsins hreinlega staðfest?

Ég þykist vita að hæstv. ráðherra hafi undirbúið svör við þessum spurningum og ég hlakka til að heyra þau. Ég vil leyfa mér að setja nokkrar þessara spurninga í betra samhengi en bæta líka nokkrum við, enda er mörgum spurningum um þetta stóra mál enn þá ósvarað.

Ég er t.d. mjög forvitin um afstöðu hæstv. ráðherra gagnvart dómunum sjálfum og hlutverki Mannréttindadómstólsins í ljósi frétta sem fram komu um daginn í Stundinni þess efnis að aðstoðarmaður fyrrverandi dómsmálaráðherra hafi sent stjórnarliðum minnisblað daginn fyrir niðurstöðu Mannréttindadómstólsins. Svo virðist sem skjalið hafi verið unnið í þeim eina tilgangi að útbúa talpunkta fyrir þingmenn stjórnarflokkanna svo hægt væri að tala niður niðurstöðu dómsins ef hann yrði íslenska ríkinu í óhag.

Í lið 3 í minnisblaði aðstoðarmanns dómsmálaráðherra segir, með leyfi forseta:

„MDE hefur útlistað bæði í leiðbeiningum sínum og túlkun greina MDE og í dómafordæmum sínum að það sé fyrst og fremst í höndum dómstóla aðildarríkjanna að túlka sín eigin landslög. MDE vefengi ekki það mat þeirra nema um sé að ræða alvarlegt brot.“

Þetta reyndar alveg rétt túlkun á málaframkvæmd Mannréttindadómstólsins. Það vildi einfaldlega þannig til að Mannréttindadómstóllinn leit á þetta sem alvarlegt brot.

Liður 5 í umræddu minnisblaði segir að úrlausnir Mannréttindadómstólsins séu ekki bindandi að íslenskum landsrétti samkvæmt 2. gr. laga um mannréttindasáttmála Evrópu, nr. 62/1994, að Ísland sé fullvalda ríki og hafi ekki framselt dómsvald sitt til Evrópu. Ísland hefur þó skuldbundið sig að landslögum til að framfylgja niðurstöðum í einstökum málum, t.d. með greiðslu skaðabóta til málsaðila.

„Ekkert íslenskt mál sem farið hefur til MDE hefur haft viðlíka stuðning og staðfestu frá íslensku réttarríki“, segir í skjalinu. Þar segir einnig að áherslan sé öll á fullveldi Íslands og úrlausnir Mannréttindadómstólsins séu ekki bindandi að íslenskum landsrétti, enda hafi dómsvaldið ekki verið framselt til Evrópu.

Undirbúningurinn var sem sagt allur með fókus á að hafna því að Mannréttindadómstóllinn hafi túlkunarvald yfir íslenskum lögum og að slíkt vald hefði ekki verið framselt til dómstóla í Evrópu.

Ég spyr í ljósi þessa minnisblaðs og í ljósi þess að það skiptir mig máli hvaða viðhorf hæstv. ráðherra hefur til þessara minnispunkta: Hvernig verður haldið á málinu áfram? Er hæstv. ráðherra sammála því að dómur Mannréttindadómstóls Evrópu sé á einhvern hátt inngrip í fullveldi Íslands eða að þar hafi dómstóllinn farið yfir strikið?