staða Landsréttar.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir þessa sérstöku umræðu. Ég byrja á því að árétta að íslenska ríkið hefur þegar óskað eftir endurupptöku hjá yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu á þeirri niðurstöðu dómstólsins sem féll þann 12. mars sl., í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi, um mánuði eftir að ég kynnti á fundi ríkisstjórnar ákvörðun mína um að íslenska ríkið myndi óska eftir endurskoðun yfirdeildar dómstólsins á þessum dómi.
Á þessum tíma fór fram ítarleg vinna af hálfu ríkislögmanns og sérfræðinga innan og utan dómsmálaráðuneytisins við beiðnina þar sem ég lagði áherslu á að vandað yrði til verka enda snertir málið óumdeilanlega mikilvæga hagsmuni hér á landi, dómsvaldið og íslenska stjórnskipan. Þessi dómur Mannréttindadómstólsins er fordæmalaus með afgerandi minnihlutaálit og vekur upp veigamiklar spurningar um túlkun og framkvæmd mannréttindasáttmála Evrópu sem Ísland er aðili að. Það er ástæðan fyrir því að óskað var eftir endurskoðun. Þessi dómsniðurstaða hafði ekki bara áhrif hér á landi heldur einnig um Evrópu. Ekki liggur fyrir hvenær íslenska ríkið fær svar um það hvort málið verði tekið til endurskoðunar hjá yfirdeild dómstólsins en líkur standa til að það verði innan fárra mánaða og vonandi sem fyrst.
Ég hef áður kynnt þá niðurstöðu mína að á meðan beðið er svars verði ekki frekari inngrip. Ég mun áfram skoða aðra fleti málsins þangað til við vitum hvort málið verður tekið fyrir í yfirdeild eða ekki. Að þessu sögðu er vert að hafa í huga, í þessari umræðu, að Hæstiréttur Íslands, sem er okkar æðsti dómstóll, hefur dæmt skipan allra dómara við Landsrétt lögmæta. Það fordæmi stendur og hefur ekki verið snúið af Hæstarétti eftir að dómur Mannréttindadómstólsins féll í mars. Samkvæmt þessu eru þannig 15 lögmætt skipaðir dómarar við Landsrétt. Fjórir þeirra hafa metið það svo, með hliðsjón af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu, að dæma ekki að svo stöddu. Við höfum skuldbundið okkur að þjóðarétti til að fullnusta þá dóma sem upp eru kveðnir um Ísland og fellur það ýmist í skaut dómstóla eða stjórnvalda að bregðast við dómum Mannréttindadómstólsins eins og við þekkjum. En við höfum eðli máls samkvæmt ekki framselt dómsvaldið sjálft til Evrópu með aðild okkar að mannréttindasáttmála Evrópu.
Verði sú niðurstaða Mannréttindadómstólsins sem hér um ræðir, í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi, endanleg mun það fyrst og fremst koma í hlut okkar æðsta dómstóls að meta hvort túlkun Mannréttindadómstólsins á landslögum, varðandi skipun dómara við Landsrétt og lögmæti hennar, hnekki fyrri niðurstöðu Hæstaréttar, að dómarar við Landsrétt séu lögmætt skipaðir. Að fenginni þeirri niðurstöðu kemur það í hlut dómaranna sjálfra að meta sína stöðu sem endranær. Enda verður þeim ekki vikið úr starfi nema með dómi samkvæmt stjórnarskrá Íslands.
Einnig er vert að minna á að meðan dómarar eru að störfum eru þeir ávallt sjálfstæðir í störfum sínum og meta á hverjum tíma sjálfir hæfi sitt til að dæma í málum. Dómarar ákveða einnig sjálfir hvort þeir óski eftir því að fara í leyfi frá störfum og dómurum verður ekki vikið úr starfi nema með dómi eins og kveðið er á um í stjórnarskrá. Það er því ekki á valdi dómsmálaráðherra eða annarra handhafa framkvæmdarvalds í landinu að grípa til slíkra aðgerða gegn tilteknum dómurum. Það er skylda framkvæmdarvaldsins að stíga varlega til jarðar og passa að aðgerðir þess séu ekki í andstöðu við stjórnarskrá, stjórnskipan landsins og jafnvel mannréttindasáttmála Evrópu.
Viðbrögð í svona málum, sem hverfast í raun um dómsniðurstöður, felast í því að kynna sér vel forsendur niðurstöðunnar þegar hún liggur fyrir og velja svo næstu skref gaumgæfilega að vel athuguðu máli. Sjaldnast er hægt að sjá fyrir forsendur dóma og því er ógerlegt að útlista viðbrögð stjórnvalda við dómi sem ekki er fallinn eða endurskoðun sem ekki hefur farið fram. Virkni dómstólanna og traust á dómskerfinu er og verður forgangsmál. Ég mun ásamt ráðuneyti dómsmála vinna áfram, af ábyrgð og yfirvegun, að lausn þessara álitaefna í samræmi við stjórnarskrá, gildandi lög og niðurstöðu íslenskra dómstóla um framkvæmd laga. Frekari aðgerðir af hálfu framkvæmdarvaldsins verða því ávallt metnar með þetta að leiðarljósi.
Hvað varðar hversu margar endurupptökubeiðnir hafi borist endurupptökunefnd eða dómstólum í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um Landsrétt þá er endurupptökunefnd sjálfstæð nefnd og ráðuneytið hefur ekki yfirlit yfir beiðnir um endurupptöku mála. Hv. þingmaður hafði óskað eftir upplýsingum um þetta fyrr í dag og þess vegna hefur ekki unnist tími til að afla upplýsinganna. Ég hef óskað eftir því við Dómstólasýsluna að þeirra verði aflað.
Um samantekt aðstoðarmanns fyrrverandi dómsmálaráðherra vil ég að lokum segja að það er alvanalegt og mjög eðlilegt að aðstoðarmenn ráðherra taki saman efni, hvort sem er fyrir þingflokk ráðherra eða stjórnarflokka, og ekkert verið að gera lítið úr Mannréttindadómstóli Evrópu eða öðru slíku heldur einfaldlega farið yfir afstöðu ráðherra til málsins. Ég hef ekkert annað um það að segja en að ég vona að aðstoðarmenn ráðherra haldi áfram að upplýsa stjórnarmeirihlutann um öll helstu mál sem eru í þinginu og annars staðar.