staða Landsréttar.
Virðulegur forseti. Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra Vinstri grænna, hefur kynnt sér vandlega þann dóm Mannréttindadómstóls Evrópu sem hér er til umræðu. Hann hefur sagt opinberlega að sú niðurstaða að mannréttindi hafi verið brotin sé ævintýraleg. Það sé slæmt og dapurlegt að verða vitni að þessari niðurlægingu Mannréttindadómstóls Evrópu. Því meira sem Ögmundur lesi af dómsniðurstöðunni, því furðulegri sé hún.
Undir þetta má taka. Það er fráleitt að mannréttindi hafi verið brotin í því máli sem var til umfjöllunar í Strassborg. Það er auðvitað skiljanlegt að þegar menn fá í hendur niðurstöðu sem þeim finnst blasa við að sé röng vilji þeir leita endurskoðunar á henni. Fólk ætti samt að gæta þess að fara ekki á taugum. Dómar Mannréttindadómstóls Evrópu eru ekki bindandi í íslenskum rétti. Það er skýrt í íslenskum lögum að þeir eru það ekki. Það væri ekki á valdi dómara eða fræðimanna að gera þá bindandi. Einstakir embættismenn í Strassborg geta ekki breytt íslenskum rétti með lögskýringum. Ef íslenskir dómarar myndu í raun dæma sjálfvirkt eftir niðurstöðum erlendra embættismanna um íslensk málefni væru þeir að færa dómsvaldið til hinna erlendu embættismanna.
Ríkisstjórnin reynir nú að fá samþykktan svokallaðan þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Þingmönnum hennar er sagt að tryggðir hafi verið miklir fyrirvarar við pakkann og við þá verði staðið. Enginn þessara fyrirvara fer nálægt því skýra lagaákvæði að dómar Mannréttindadómstóls Evrópu séu ekki bindandi á Íslandi.
Alþingi Íslendinga samþykkti skipun 15 dómara í Landsrétt. Forseti Íslands staðfesti skipun dómaranna að lokinni eigin athugun. Landsréttur hefur dæmt að dómararnir fari með dómsvald. Hæstiréttur Íslands hefur dæmt að dómararnir fari með dómsvald og að í því felist ekki mannréttindabrot. Þessu verður ekki haggað með áliti erlendra embættismanna svo lengi sem Ísland er fullvalda ríki.
Það er kannski skiljanlegt að þeir sem telja niðurstöðu meiri hlutans í Strassborg alranga (Forseti hringir.) vilji gefa efri deild dómstólsins færi á að leiðrétta niðurstöðuna en niðurstaða slíkrar endurskoðunar verður jafn óbindandi í íslenskum rétti og núverandi niðurstaða er. (Forseti hringir.) Allir landsréttardómararnir 15 fara með dómsvald og gera það áfram.