staða Landsréttar.
Virðulegur forseti. Á undanförnum áratug hafa orðið viðamiklar og jákvæðar breytingar á dómsvaldinu hér á Íslandi. Ég ætla ekki að kalla þær byltingarkenndar enda er það kannski ekki æskilegt eða vinsælt orðfæri þegar kemur að réttarkerfinu. En miklar eru þær og eiga eflaust sinn þátt í því að traust á dómskerfinu hefur aukist á nýjan leik.
Millidómstigi hefur verið komið á laggirnar og með því milliliðalausri sönnunarfærslu á áfrýjunarstigi, sem er mikilvægur liður í réttlátri málsmeðferð. Dómstólasýslan tók til starfa í fyrra og vinnur nú að fjölmörgum mikilvægum verkefnum, þar á meðal á sviði símenntunarmála. Síðast en ekki síst hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á lögum um skipan dómara. Fyrir áratug var vald ráðherra í þeim efnum mikið. Leita átti til ráðgefandi hæfnisnefndar við skipan héraðsdómara en þegar kom að skipan hæstaréttardómara var það Hæstiréttur sjálfur sem var kallaður til álitsgjafar og honum þar með gefið mikið vald. En ráðherra hafði ríkt svigrúm til ákvarðanatöku og skapaðist þannig óhjákvæmilega spenna á milli þessara ólíku stoða ríkisvaldsins.
Með lagabreytingum um skipan dómara frá árinu 2010 var þessu breytt, eins og öllum hér er kunnugt. Ráðherra var gert að fylgja áliti dómnefndar um skipan dómara eða að öðrum kosti bera breytta tillögu undir Alþingi. Alþingi var þannig falin ríkari ábyrgð en áður og í þessu máli sem við ræðum í dag var sú ábyrgð enn meira afgerandi, svo sem kveðið var á um í sérstökum lögum.
Það var vissulega óvenjulegt verkefni að skipa 15 dómara á einu bretti. Það reyndi á dómnefndina í því máli, dómsmálaráðherra og svo Alþingi. Segja má að allir þessir aðilar hafi fengið sinn skerf af gagnrýni. Þetta hefur leitt til mjög svo óæskilegrar óvissu sem nú er unnið hörðum höndum að því að greiða úr.
Ég tek undir það með hæstv. dómsmálaráðherra að þetta verkefni krefst yfirvegunar og ábyrgðar og ég vona að við öll sem í þessum sal sitjum leggjum okkar lóð á vogarskálarnar til að eyða þessari óvissu og skapa traust um hið nýja en mjög svo mikilvæga dómstig sem Landsréttur er.