149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

staða Landsréttar.

[16:14]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Margt hefur verið rætt og ritað um þetta mál. Í sjálfu sér skiptir ekki miklu máli þegar ég bæti við það í yfirferð á stöðunni. Hún hefur komið býsna skýrt fram. Hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir hana. Þess vegna langar mig að beina sjónum mínum að tveimur hlutum sem komið hafa fram í þessari umræðu sem mér hefur þótt að einhverju leyti sérkennilegt að hlýða á.

Í fyrsta lagi, í tilefni af umræðu um talpunkta sem sendir hafi verið þingmönnum allra stjórnarliða þá væri hálfankannalegt að þurfa að segja það, en ég geri það samt, forseti. Ég hef aldrei í öllum þeim ræðum sem ég hef haldið, hvar sem er og stigi þess máls, talað upp úr einhverjum talpunktum sem einhver annar hefur sent mér. Fólk sem er í vinnunni sinni í stjórnkerfinu, getur haft sína skoðun, komið henni á framfæri eins og alvanalegt er. Síðan er það okkar þingmanna að ákveða hvort við erum sammála þeirri skoðun eða ekki og hvernig við setjum mál okkar fram.

Annað sem komið hefur fram varðar það að tala niður Mannréttindadómstólinn. Þá vil ég ítreka að ég geri skýran greinarmun á því að hafa skoðun á dómi eða niðurstöðu eða kerfinu sjálfu. Ég geri engan greinarmun á því hvort við tölum um dómstóla, dóma þeirra, úrskurðarnefndir, úrskurði þeirra, siðanefndir, úrskurði þeirra eða hvað það er. Við getum haft skoðun á „próduktinu“, afsakið, forseti, þ.e. úrskurðinum eða dómnum, án þess að með því séum við að tala niður kerfið. Ég vara við því að við tölum svona því að það á þá við um allt sem ég hef nefnt hér, úrskurði allra ofantalinna fyrirvara.