staða Landsréttar.
Herra forseti. Já, þetta er sannarlega áhugaverð umræða sem hér á sér stað og eiginlega hálfbroslegt að fylgjast með breimandi fulltrúum Miðflokksins sem ásælast greinilega mjög sæti við ríkisstjórnarborðið. Mér þætti gott að vita frá hæstv. dómsmálaráðherra hvenær áfrýjunarbeiðni fór frá Íslandi til Mannréttindadómstóls Evrópu, af því að hún var ekki farin fyrir stuttu síðan. Ég vil gjarnan fá að vita hvenær það var og þætti einnig gott að fá að vita hvenær svar mun berast við fyrirspurn minni um kostnað vegna alls þessa klúðurs. Hvort hæstv. ráðherra hafi einhverja hugmynd um hvenær við fáum upplýsingar um þann kostnað sem þetta allt hefur leitt af sér.
Mig langar líka aðeins að víkja máli mínu að þeim ítrekunum sem komið hafa fram hjá hæstv. dómsmálaráðherra um að Hæstiréttur hafi sagt að dómararnir séu löglega skipaðir. Þetta er ítrekað sagt, og að dómararnir meti sjálfir hvort seta þeirra í dómi standist lög. Að þeir meti hæfi sitt. Mér finnst það orðið pínulítið óþægilegt hvað það kemur ítrekað fram, við hvert einasta tækifæri.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji svo vera að dómararnir gætu í rauninni í dag, án beinna fjárhagslegra afleiðinga fyrir íslenskan ríkissjóð, sest í dóminn, haldið áfram að dæma og að það muni ekki hafa neinar afleiðingar í framhaldinu.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur nú dæmt þannig að dómstóllinn með þessa fjóra dómara sé ekki hlutlaus og óvilhallur, að það sé í andstöðu við 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem við erum aðilar að. Við höfum líka skuldbundið okkur til að hlíta niðurstöðum dóms Mannréttindadómstóls Evrópu.
Mig langar að fá að að heyra aðeins um það. Klifað er á því að dómararnir séu löglega skipaðir og skautað fram hjá hinu. Þetta sé bara formið. Að forseti hafi kvittað upp á, o.s.frv.
Er hæstv. dómsmálaráðherra í rauninni að segja að dómararnir gætu bara sest niður aftur og metið það svo að þeir megi starfa?