149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

staða Landsréttar.

[16:19]
Horfa

Hjálmar Bogi Hafliðason (F):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér stöðu Landsréttar eftir niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu. Upphaf málsins er skipan dómara við dóminn þar sem litið er fram hjá niðurstöðu nefndar um hæfi einstaklinga. Ferlið við skipun dómara er hins vegar í lagi en ekki farið eftir því.

Málið virðist eiga sér fá ef einhver fordæmi og við það myndast alltaf tómarúm í úrvinnslu dóma. En það er búið að skipa 15 dómara við Landsrétt. Nú er mikilvægt að tala um ákvörðun ráðherra og ferlið en ekki þá einstaklinga sem voru skipaðir í dóminn. Það breytir því ekki að um stöðu fjögurra þeirra við dóminn er nú deilt og rætt. Hér var um einskiptisaðgerð að ræða sem var ekki í lagi með að mati Mannréttindadómstóls Evrópu.

Getum við lagt dómstigið niður þannig að 15 dómarar vænti bóta eða breytt rétt og tekið afleiðingum skipunarinnar og bætt hagi þeirra fjögurra sem um ræðir og skipað að nýju fjóra dómara við réttinn? Eigum við að hafa 11 dómara? Það væri skjótvirkasta aðgerðin til að rétturinn tæki að virka og ró færðist yfir. Við getum líka tekið þá ákvörðun að hunsa Mannréttindadómstólinn, hvaða afleiðingar sem það hefur í för með sér. Hvernig breytir sú niðurstaða því hvernig við vinnum úr þessari stöðu sem upp er komin?

Hefur Mannréttindadómstóll Evrópu seilst of langt inn í fullveldi þjóðar? Álit þeirra sérfræðinga sem komu fyrir nefndina var alls konar og engin niðurstaða virðist blasa við.

Hvað er það sem skiptir mestu máli hér, traust á dómstólum, þessir fjórir dómarar eða ferlið við skipan þeirra? Það hlýtur að vera traust á dómstólunum. Þess vegna eigum við stjórnmálamenn sem setjum leikreglurnar að vinna saman að því að finna farsæla lausn og umfram allt að vanda okkur, gefa okkur tíma og ávinna traust að nýju.