staða Landsréttar.
Herra forseti. Þetta mál er allt tómt klúður, að mörgu leyti, og ekki síst er það stórkostlegt klúður af hálfu dómsmálaráðuneytisins og ráðherra Sjálfstæðisflokksins að hafa ekki verið undirbúnir fyrir niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu.
En það er búið. Nú stöndum við hér á þingi og hæstv. dómsmálaráðherra frammi fyrir því að leysa þá stöðu sem dómskerfi okkar, þar með talinn Landsréttur, er komið í.
Ég ætla ekki að gera ágreining við ráðherra um að fara með málið fyrir endurupptökudeildina hjá Mannréttindadómstólnum, þótt ég hefði vissulega viljað sjá það gert með meiri reisn, af meiri virðingu, ekki með þessum útúrsnúningum og ólund sem einkenndi ekki síst málflutning þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Mér finnst miður að upplifa það enn og aftur í dag í málflutningi sumra, m.a. systurflokks Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, eða alla vega hluta af systurflokki Sjálfstæðisflokksins, að haldið er áfram að höggva í sama knérunn, að tala niður til Mannréttindadómstólsins í staðinn fyrir að taka hann alvarlega.
Það er ekki einkamál Sjálfstæðisflokksins eins og sér hvernig við ráðum úr þessu máli. Það þarf að eyða óvissu. Það þarf að hafa skýr svör. Ég ræð það af svörum hæstv. ráðherra áðan að hún ætli að vera tilbúin með áætlun hvernig sem fer með ákvörðun endurupptökudeildar og ég fagna því og hvet ráðherra til að gera það.
Einnig vil ég hvetja ráðherra til að vera í samstarfi við alla stjórnmálaflokka, ekki bara stjórnarandstöðu. Það hendir nefnilega, ég þekki það, að aðrir stjórnarflokkar í ríkisstjórn er ekkert endilega upplýstir um það sem gerist í dómsmálaráðuneytinu. Ég vil hvetja hæstv. dómsmálaráðherra til að vera í samráði við alla stjórnmálaflokka um hvernig við leysum úr þessu máli. Það er það mikið undir. Þetta snýst ekki um stjórn eða stjórnarandstöðu. Þetta snýst um að eyða óvissu fyrir okkar mikilvæga millidómstig og auka réttaröryggi í landinu.