staða Landsréttar.
Virðulegur forseti. Þetta er eiginlega stórmerkileg umræða sem við eigum í um dómstólana. Við erum að reyna að auka traust til dómstóla eins og héraðsdóms og núna til nýs Landsréttar og Hæstaréttar. Það er flott að málið sé loksins komið til Mannréttindadómstólsins en þá förum við að efast um að ef Mannréttindadómstóllinn kemst að einhverri niðurstöðu sé hún rétt. Við efumst um annan dómstól á sama tíma og við erum að reyna að hífa upp eitthvert álit á þeim dómstólum sem við höfum hérna heima.
Ef Mannréttindadómstóllinn vísar málinu frá eða tekur til efnislegrar meðferðar og dæmir í því, ætlum við þá að fara að rífast um hvort sá dómur sé réttur eða rangur? Hvernig bætir það stöðuna fyrir íslenska dómstóla og sýnir að við berum meiri virðingu fyrir þeim?
Ef við gerum ekki eitthvað í þessu máli fljótt þannig að þetta tefjist ekki það lengi að mál safnist bara fyrir í Landsrétti og verði óvinnandi vegur að koma hlutunum í lag erum við ekki hæf til að koma málum frá okkur þannig að þau séu rétt og hægt sé að bera virðingu fyrir því að við séum virkilega að reyna að hífa upp dómskerfið og almenningur geti treyst því að þar sé allt í lagi.