149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

staða Landsréttar.

[16:25]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Fordæmalaus dómur, segir hæstv. dómsmálaráðherra, en svarar ekki miklu um hvað hún ætli að gera til að bregðast við honum, ef eitthvað. Við ætlum að bíða og sjá. Það er enn þá sama svarið og við fengum þegar dómurinn féll og sama svarið og við fengum á meðan hann hékk yfir okkur. Það hefur ekki mikið breyst í þeim efnum.

Hæstv. ráðherra sagði, og það var það eina sem mér fannst nú frekar skýrt í máli hæstv. ráðherra, að hún ætlaði ekkert að gera í millitíðinni annað en að skoða aðra fleti málsins. Ég kem kannski að því eftir augnablik hvað í ósköpunum það þýðir. En hæstv. ráðherra talaði um að það væri alvanalegt að aðstoðarmenn ráðherra sendu út minnisblöð til stjórnarliða. Ég var ekkert að reyna að gera þetta minnisblað neitt tortryggilegra en það þarf að vera. Ég spurði hæstv. ráðherra hvort hún væri sammála þeirri línu sem tekin er þar, að Mannréttindadómstóllinn ætti ekkert með að vera að dæma svona í þessum málum, að við hefðum nú ekki framselt túlkunarvald okkar til Evrópu, og annað slíkt sem kom fram í máli margra ráðherra Sjálfstæðisflokksins í kjölfar þessa dóms.

Ég spyr vegna þess að það skiptir máli um hvernig hæstv. ráðherra ætlar að halda áfram. Finnst henni þetta koma Mannréttindadómstólnum við eða ekki? Það er spurning. Finnst henni Mannréttindadómstóllinn hafa rétt til að skera úr um það hvort 6. gr. hafi verið brotin í þessu tilfelli? Það er spurning mín.

Hæstv. ráðherra sagði að hún vildi skoða aðra fleti málsins. Hvaða fleti málsins ætlar hæstv. ráðherra að skoða ef hún ætlar ekki að skoða hvað gera eigi varðandi fjölda dómara, ef hún ætlar ekki að skoða hvernig koma eigi Landsrétti í eitthvert almennilegt horf fyrr en einhvern tímann, ef við vitum einhvern tímann hvað er að fara að gerast í þessu máli? Hvaða fleti málsins ætlar hæstv. ráðherra að skoða og hvernig?

Ætlar hæstv. ráðherra hugsanlega að spyrja hvort það sé ráðlegt að fá (Forseti hringir.) sitjandi dómara við dómstólinn til að ráðleggja sér um hvernig standa eigi að málum í Mannréttindadómstólnum?