staða Landsréttar.
Virðulegi forseti. Það var komið inn á það áðan að Landsréttur væri mikil réttarbót. Hann er það augljóslega. Um var að ræða sögulegt skref. Mér fannst örla á því hjá einhverjum hv. þingmönnum að það væri eins og hann væri í algerum lamasessi eða jafnvel ekki lengur til staðar. Mér finnst við þurfa að passa aðeins hvernig við tölum um stöðuna. Hér er sagt að Landsréttur hafi átt að bæta réttarkerfið. Ég vil bara koma því að að Landsréttur hefur að sjálfsögðu bætt réttarkerfið og mun gera það áfram.
Hér er ég sökuð um að sýna mikið ábyrgðarleysi. Það er allt í lagi að hafa þá skoðun. Ég er algerlega ósammála því að mitt vinnulag feli í sér ábyrgðarleysi. Það er líka ábyrgð sem felst í því að gefa hlutunum tíma og skoða einmitt alla fleti málsins. Ég hef t.d. ekki sagt að ég skoði undir engum kringumstæðum fjölgun dómara. Það sem ég hef sagt er að ég mun ekki grípa til frekari aðgerða fyrr en við vitum hvort málið verði tekið fyrir eða ekki.
Varðandi samráðsleysi hef ég fundað tvisvar sinnum með formönnum allra flokka um þetta mál og mun gera það aftur ef tilefni er til.
Hvað varðar skot á það að Davíð Þór Björgvinsson hafi verið fenginn til þess að ráðleggja ríkisstjórn í Landsréttarmálinu er því til að svara að það var ríkislögmaður sem heyrir undir forsætisráðuneytið sem óskaði eftir ráðgjöf frá Davíð Þór Björgvinssyni um málflutning íslenska ríkisins. Þess má geta að Davíð Þór var í leyfi frá störfum sem dómari við Landsrétt af því að hann var á þessum tíma settur ríkissaksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) hefur áður svarað til um hvað fólst í því, m.a. að sitja með henni fundi og veita ríkislögmanni aðstoð.
Ég þakka kærlega fyrir þessa umræðu. Það verður örugglega frekari umræða um þetta mál.
Varðandi fyrirspurn hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur er hún í vinnslu og ég geri ráð fyrir að svar verði sent út í þessari viku.