tækifæri garðyrkjunnar.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að vilja taka þátt í þessari umræðu sem ég kalla tækifæri garðyrkjunnar.
Í apríl 2018 skipaði ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra starfshóp með það að markmiði að taka til skoðunar raforkumálefni garðyrkjubænda. Starfshópnum var ætlað að fara yfir þróun rafmagnskostnaðar garðyrkjubænda og greina tækifæri til þróunar og nýsköpunar innan atvinnugreinarinnar. Garðyrkjubændur hafa frá því á árinu 2005 haft samning við stjórnvöld um að ríkisvaldið greiði niður flutning og dreifingu á raforku til lýsingar í ylrækt. Í reynd greiða garðyrkjubændur fyrir orkuna en ríkið hefur greitt niður flutning og dreifingu um allt að 95%. Á síðustu árum hefur þó verulega vantað upp á að sú niðurgreiðsla hafi skilað sér til bænda en hún fór niður í 64,8% þegar verst lét. Rafmagnskostnaður garðyrkjubænda af tekjum er á bilinu 25–40%. Með tillögu samstarfshóps um að fastagjald yrði einnig niðurgreitt varð sú breyting frá og með 1. janúar sl. að niðurgreiðsluhlutfallið varð 82% í þéttbýli og 86,1% í dreifbýli. Þessi tillaga hópsins var því komin í framkvæmd áður en starfi hópsins lauk.
Virðulegi forseti. Það getur engin atvinnugrein lifað í svo sveiflukenndu umhverfi þar sem stór hluti rekstrarkostnaðar hleypur á 25–40% á milli ára. Garðyrkjulandið Ísland á að taka forystu í ræktun heilnæmra afurða sem fullnægja innanlandsmarkaði. Til þess að svo verði þarf áræði, framtíðarsýn, markaðsaukandi stuðning og stöðugleika í rekstrarumhverfi. Íslensk framleiðsla skilar fimm sinnum minna kolefnisspori en innfluttar afurðir og hlutur garðyrkjunnar í matvælaframleiðslu landsins er 7,6% en kolefnislosunin er 1%. Þessi staða garðyrkjunnar er dauðafæri fyrir framlag Íslands til minni losunar og minna kolefnisspors.
Virðulegur forseti. Samkeppnin er hörð. Í Evrópu eru gróðurhús á mörgum hekturum lands sem nota gas og olíu eða jafnvel kjarnorku til að kynda og lýsa gróðurhús og skila miklu sótspori. Íslenskir blómabændur keppa við ókeypis sólarljósið á ökrum við Viktoríuvatn í Afríku þar sem mánaðarlaun verkamanns á akrinum eru 2.500 kr. eða sem nemur tímalaunum á Íslandi. Mætum þessum áskorunum með markaðssækjandi aðstoð og stórsókn í framleiðslu heilnæmra afurða úr frjóum sverði sem hreint landið býr yfir. Endurnýjanleg sjálfbær, ódýr orka, nýsköpun og efling hefðbundinnar garðyrkju getur gert landið sjálfbært með eigin framleiðslu sem ekkert annað land stenst snúning þegar kemur að gæðum og heilnæmi vörunnar.
Stórir draumar um staðbundna raforkuframleiðslu við gróðurhús rætast, heitu vatni er veitt að gróðurhúsi, 30°C teknar til að búa til rafmagn og 70°C notaðar til að hita upp gróðurhúsin. Er það allt of gott til að vera satt? Eða hyggst ráðherra mæla fyrir og breyta reglugerð til að auðvelda garðyrkjunni að safna koltvísýringi úr andrúmslofti eða frá stóriðju og jarðvarmaorkuverum til að nýta í ræktun þannig að koltvísýringsnotkun gróðurhúsa verði kolefnishlutlaus?
Virðulegi forseti. Tækifærin eru ótrúlega spennandi og við höfum ekki tíma til að bíða. Lífið er núna. Tækifæri bíða. Eða er það of gott til að vera satt?
Í ljósi tækifæra garðyrkjunnar spyr ég hæstv. ráðherra: Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ríkisvaldið skapi stöðugleika í rekstrarumhverfi garðyrkjunnar með því að standa við 95% niðurgreiðsluhlutfall flutningskostnaðar raforku, eins og fram kemur í búvörusamningi? Er ráðherra tilbúinn að beita sér fyrir nýsköpun sem byggir á nýrri gerð gróðurhúsa, „vertical“ eða lóðrétt, og aldingarða sem risið geta, að garðyrkjan geti notið jafnræðis og sambærilegra samkeppnisskilyrða og hefðbundin tækni?
Í öðru lagi spyr ég ráðherra: Deilir ráðherra þeirri sýn framsögumanns að styrkja rekstrarumhverfi garðyrkjunnar, lækka raforkukostnað og að verð fyrir flutning og dreifingu verði sambærilegt í dreifbýli og þéttbýli, styrkja nýsköpun og gera hugrakka áætlun um sjálfbæra hreinræktaða framleiðslu fyrir innanlandsmarkað fyrir árið 2025?
Og í þriðja lagi spyr ég hæstv. ráðherra: Er það raunhæf sýn að Ísland verði hreinasta garðyrkju- og matvælaframleiðsluland í heimi, þar sem aldingarðar og sjálfbærar garðyrkjafurðir og innlend matvælaframleiðsla með lágu kolefnisfótspori verði aðdráttarafl fyrir ferðamannalandið Ísland í náinni framtíð?