tækifæri garðyrkjunnar.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á málefnum garðyrkjubænda með þessari umræðu. Starfsskilyrði þeirra eru reglulega til umræðu. Fyrr á þessu ári var kynnt skýrsla starfshóps sem fjallaði sérstaklega um raforkumálefni garðyrkjubænda sem hv. þingmaður leiddi.
Ég mun leitast við að svara þeim spurningum sem hv. þingmaður hefur lagt fram í fjórum liðum. Í fyrsta lagi er spurt hvort ráðherra hyggist beita sér fyrir því að ríkisvaldið skapi stöðugleika í rekstrarumhverfi garðyrkjubænda með því að standa við 95% niðurgreiðsluhlutfall flutningskostnaðar raforku, eins og fram kemur í búvörusamningi.
Í 5. gr. búvörusamninga segir að magnliðir í gjaldskrá fyrir flutning og dreifingu raforku skuli niðurgreiddir um allt að 95% fyrir framleiðendur garðyrkjuafurða. Þetta hlutfall hefur sveiflast nokkuð á undanförnum árum, fór um tíma niður fyrir 70% en er nú 82% í þéttbýli, 86% í dreifbýli. Áðurnefndur starfshópur leggur til, með fyrirvara um fjármögnun, að skrifað verði inn í búvörusamninga að hlutfallið fari aldrei undir 90%. Ég get tekið undir það með starfshópnum að stöðugleiki er mikilvægur fyrir framleiðendur garðyrkjuafurða. Hins vegar er það svo að framkvæmd niðurgreiðslna til garðyrkjubænda og viðkomandi fjárlagaliður er á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Það er áréttað vissulega í skýrslu starfshópsins að þær tillögur og aðgerðir sem þar er að finna séu ekki allar á forræði ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Í öðru lagi vegna spurningar um nýsköpun í garðyrkju þá er ég þeirrar skoðunar að í þeim geira eins og mörgum öðrum séu gífurleg tækifæri til nýsköpunar og rétt sé að styðja við aukna nýsköpun hjá garðyrkjubændum. Þess vegna ákvað ég að fulltrúi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands skyldi eiga sæti í áðurnefndum starfshópi og í skýrslu hópsins er að finna umfjöllun um möguleika til aukinnar nýsköpunar í greininni. Má þar t.d. nefna nýjar gerðir gróðurhúsa, orkusparandi led-gróðurlýsingu og tilraunir með slíka lýsingu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, minnkun á kolefnisfótspori ylræktar með því að draga úr aðkeyptri kolsýru með nýrri tækni og ýmislegt fleira líkt og hv. þingmaður kom inn á. Nýsköpunarmiðstöð og Landbúnaðarháskólinn hafa unnið nokkur samstarfsverkefni sem lúta að þessum þáttum og þau hafa verið styrkt af Tækniþróunarsjóði.
Í skýrslunni er að finna tillögur sem lúta að aukinni nýsköpun, m.a. um rannsóknasjóð garðyrkjunnar, hvata til að nota orkusparandi ljósgjafa og græn lán til garðyrkjubænda sem hyggjast fara í orkusparandi aðgerðir. Ég tel að þetta séu áhugaverðar tillögur og þær eru nú til frekari skoðunar í ráðuneytinu annars vegar og hjá Nýsköpunarmiðstöð hins vegar. Þær koma m.a. inn í þá vinnu sem nú stendur yfir um mótun heildstæðrar nýsköpunarstefnu fyrir Ísland.
Í þriðja lagi varðandi lækkun raforkukostnaðar og að verð fyrir flutning og dreifingu verði sambærilegt í dreifbýli og þéttbýli. Raforkureikningur samanstendur sem kunnugt er af fjórum þáttum; framleiðslu, flutningi, dreifingu og sköttum. Framleiðslan er á samkeppnismarkaði eins og við vitum, flutningur kostar það sama alls staðar á landinu þannig að sá kostnaður er alveg jafn hvar á landinu sem er, það er í dreifingunni sem munurinn er til staðar. Lækkun raforkukostnaðar til garðyrkjubænda felst þess vegna í þeim niðurgreiðslum á magnliðum dreifikostnaðar, sem áður er minnst á, um allt að 95% eins og kveðið er um á búvörusamningum.
Í fjórða lagi varðandi það hvort það sé raunhæf sýn að Ísland verði hreinasta garðyrkju- og matvælaframleiðsluland í heimi, sem verði einnig aðdráttarafl fyrir okkur sem ferðamannaland, þá er vissulega stefnt að því að Ísland verði eins sjálfbært í matvælaframleiðslu og unnt er. Við munum sjá skýrari línur og útfærslu í þeim efnum í þeirri matvælastefnu sem nú er unnið að. Ég nefni sem dæmi að það er til fyrirmyndar að Sölufélag garðyrkjumanna skuli hafa kolefnisjafnað alla flutninga á grænmeti frá býli til kaupenda. Í nýlegri innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila er einnig mikil áhersla lögð á jákvæð umhverfisáhrif í framleiðslu, flutningum og umsýslu matvæla þannig að segja má að stjórnvöld hafi gefið tóninn í átt að grænni skrefum. Það er auðvitað algjörlega sjálfsagt og eðlilegt að stjórnvöld sjálf, ríkisaðilar, gangi fram með góðu fordæmi og byrji hjá sjálfum sér, enda kaupir ríkið matvæli, ef ég skil rétt, fyrir hátt í 3 milljarða á ári. Það er aldeilis mikið þar undir ef við förum að huga bæði að kolefnisfótspori og öðrum þáttum í okkar innkaupum.
Ef við horfum til ferðamanna er umhverfisvitund þeirra sem betur fer að aukast og við eigum mikil sóknarfæri þar. Matarauður Íslands leiðir t.d. norrænt verkefni um staðbundinn mat í ferðaþjónustu framtíðarinnar þar sem skoðuð eru áhrif loftslagsbreytinga og neysluhegðunar. Verkefnið er til þriggja ára og mun tengja saman matvælaframleiðendur og ferðaþjónustuaðila. Mikil vakning er um sjálfbæra ferðaþjónustu í löndum í kringum okkur og það á að vera okkur hvatning til að nýta sóknarfærin og skipa okkur í allra fremstu röð. Við höfum allar forsendur til að gera það. Hluti af því sem ég sé fyrir mér sem sýn fyrir ferðaþjónustuna er að auðvitað þurfa ferðamenn að fljúga til að koma hingað, nema þeir komi með skipi, og það mengar, en að öðru leyti gætu þeir verið hér og jafnvel kolefnisjafnað sína ferð, hvort sem þeir keyra um á rafbílum eða kaupa staðbundin gæðamatvæli. Og við eigum að sjálfsögðu að vera með skýra sýn og hafa metnað, ekki (Forseti hringir.) bara til að standa við bakið á þeim sem hér eru og framleiða matvæli, heldur af því að það skiptir máli fyrir umhverfið. (Forseti hringir.) Við höfum allar forsendur til að vera í fremstu röð þegar kemur að því.