149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

tækifæri garðyrkjunnar.

[16:41]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Við erum auðvitað öll stolt af okkar öflugu garðyrkju. Sú var tíðin að þjóðin borðaði nánast engar afurðir sem kallast í dag ávextir eða grænmeti, nema ef vera skyldi fjallagrös og fjörukál sem japlað var á. Það eru kannski ekki ýkja margir sem minnast þeirrar hátíðarstundar þegar ilmur jólaeplanna boðaði komu jólahátíðarinnar. Við gerum okkur oft ekki grein fyrir því hve breytingarnar eru örar.

Það er ekki svo langt síðan að beislun fallvatnanna varð til þess að við Íslendingar gátum farið að neyta grænmetis í ríkari mæli en áður og hætt að treysta á innflutning þess. Auðvitað á þjóð sem býr svo vel að eiga alla þessa raforku að vera að mestu sjálfri sér næg með grænmeti og blóm og fleira slíkt sem hægt er að rækta hér á landi.

Samkvæmt tilraunum sem hafa staðið yfir í Hveragerði og víðar hefur ræktun ávaxta gengið vel í gróðurhúsum og eru raunhæfir möguleikar á að við getum ræktað okkar eigin ávexti að miklu leyti.

Auðvitað er, herra forseti, innlenda framleiðslan umhverfisvænust, bæði hvað varðar notkun eiturefna, einfaldlega vegna færri sníkjudýra í framleiðslunni, og ekki síður vegna þess að afurðirnar eru fluttar tiltölulega stuttar vegalengdir á borð neytendanna. En við erum að selja innlendum framleiðendum þessara góðu vara rafmagnið á svo háu verði að samkeppnisstaða þeirra verður fyrir vikið erfið gagnvart innfluttu grænmeti, ávöxtum og blómum.