tækifæri garðyrkjunnar.
Herra forseti. Ég fagna þessari sérstöku umræðu en við þingmenn Samfylkingarinnar höfum verið dugleg við að halda á lofti mikilvægi þess að efla ylrækt og framleiðslu ávaxta og grænmetis á Íslandi. Það hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og nú að horfa til aukinnar nýsköpunar í greininni og má þar m.a. nefna mál sem ég hef komið inn á áður í ræðustól, sem eru tækifærin sem felast í því að nýta lághitann okkar og hliðarstrauma orkuframleiðslu með jarðvarma betur til framleiðslu á alls kyns grænmeti og ávöxtum.
Af hverju erum við til að mynda ekki að rækta alls kyns graskerstegundir sem t.d. eru ræktaðar jafnvel í Alaska? Af hverju niðurgreiðum við ekki framleiðslu fleiri tegunda og aukins magns til þess að minnka þörfina fyrir innflutning og tilheyrandi kolefnisspor?
Með aukinni uppbyggingu á stærri skala ættum við auðveldlega að geta framleitt allt það grænmeti sem Íslendingar þurfa og jafnvel rúmlega það og mætti horfa til reynslu Hollands í því samhengi þar sem byggð hefur verið upp umfangsmikil ræktun matvæla, ávaxta, grænmetis og auðvitað blóma. Við ættum því að auka verulega framlög til rannsókna og nýsköpunar á framleiðslu grænmetis og ávaxta sem og til aukinnar framleiðslu.
Staðreyndin er að það eru miklar breytingar fram undan og þarf að auka framleiðslu matvæla um 50–70% á næstu 30 árum. Vegna áhrifa loftslagsbreytinga á umhverfi er það svo staðreyndin að framleiðsla mun í meira mæli þurfa að fara fram í stýrðu umhverfi eins og gróðurhúsum, auk þess sem mikilvægt er að minnka kjötneyslu og auka neyslu plöntuafurða.
Herra forseti. Við getum ekki skorast undan þeirri ábyrgð, auk þess sem við höfum með aukinni framleiðslu innan lands tækifæri til að minnka kolefnisfótspor Íslands í heild þar sem þar með þyrfti að flytja minna inn, sem er sannarlega í samræmi við sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna.