tækifæri garðyrkjunnar.
Herra forseti. Garðyrkjan er atvinnugrein sem á sannarlega framtíðina fyrir sér á Íslandi. Hér er gnægð af vatni, eins og við þekkjum, og hrein orka og þá er framleitt grænmeti með nánast engum plöntuvarnarefnum eða skordýraeitri. Þetta er vara sem er mikil eftirspurn eftir og gott dæmi er um samþættingu í framleiðslu á ferðaþjónustu hjá aðilum eins og í Friðheimum. Þar skapa þeir landsbyggðinni atvinnu með því að nýta þau gæði sem við höfum upp á að bjóða.
Við getum tekið pólitíska ákvörðun um að framleiða meira magn af því grænmeti sem neytt er á Íslandi innan lands. Nú eru það helst tómatar, paprika og agúrka þar sem innlend framleiðsla hefur samkeppnisforskot. Aukin nýsköpun í framleiðslu og innleiðing tækni á borð við svokallaða lóðrétta garðyrkju kann að auka samkeppnisforskot í fleiri tegundum.
Í því samhengi má einnig nefna fyrirtækið Nordic Wasabi sem framleiðir wasabi á Egilsstöðum, bæði til notkunar/neyslu innan lands og til útflutnings. Hér eru tækifæri fyrir fleiri framleiðendur, enda er mikil aukning í neyslu á grænmeti. Við getum gert það með tveimur leiðum að mínu mati. Það er annars vegar að niðurgreiða dreifingarkostnað raforku til garðyrkjunnar enn frekar en nú er gert. Svo eru það einfaldar aðgerðir sem snúa að merkingu og ég bind vonir við vinnu starfshóps á vegum landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra sem snýr einmitt að því að bæta merkingar á matvælum, sem mun skila árangri.
Í því samhengi kom á óvart að í innkaupum ríkisins á grænmeti var einungis helmingur þess grænmetis sem notað er í mötuneytum ríkisins innlendur.
Ég tel að lokum að gera þurfi hvort tveggja, að niðurgreiða rafmagn til að framleiða grænmeti og það er í rauninni grænt skref vegna þess að að öðrum kosti flytjum við grænmeti langar leiðir. Það kostar kolefnisspor. Við eigum umhverfisvæna orku hér heima og þurfum sem (Forseti hringir.) neytendur að vera upplýst um uppruna matvæla.