149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

tækifæri garðyrkjunnar.

[16:52]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og ekki síður hæstv. ráðherra fyrir svörin sem mér finnst bera vott um ákveðna framsýni. Við í Viðreisn höfðum ótrúlega gaman af því þegar við fórum í heimsókn til Félags garðyrkjubænda í Bændahöllina eftir að okkar öflugi varaþingmaður, Sigríður María Egilsdóttir, hafði skrifað í grein í blað um allar umbúðirnar utan um grænmetið og beindi sjónum að gúrkunni í spandex-gallanum, plastspandexgallanum. Um leið dró hún fram að Íslendingar og ekki síst ungt fólk eins og hún vill velja íslenskt og hugsar um kolefnisjöfnun. Það liggja gríðarleg sóknarfæri í því, eins og ráðherra kom vel inn á í sinni ræðu, hvernig við Íslendingar svörum samkeppninni.

Mér finnst garðyrkjan vera nákvæmlega sú grein innan landbúnaðarins sem hefur einmitt svarað samkeppni eins og á að gera, með stórsókn, með bjartsýni. Ég held að við sjáum, með fullri virðingu fyrir öllum öðrum greinum, eiginlega hvergi nema í grænmetinu stórkostlega vöruþróun, nýsköpun. Hugsið ykkur bara fyrir tíu árum hvernig tómataræktunin var. Svo er hún komin yfir í alls kyns form á tómötum, bragði á tómötum, tómatmauki, afleidda vöru sem gefur miklu meiri arðsemi en áður. Þannig eigum við auðvitað að nálgast landbúnaðinn líka.

Það var verið að tala um tollvernd. Hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir minntist á að við ættum hugsanlega að afnema tollvernd gegn beingreiðslum í útiræktun. Ég held að við eigum að skoða það alvarlega því það hefur sýnt sig að beingreiðslurnar skila sér. Við í Viðreisn tökum undir það. Við viljum ekki lækka greiðslur til bænda, við viljum beina þeim í þá átt að nýsköpunin verði sem mest. Við hvetjum bændur til að vinna sem mest úr hráefninu þannig að meira fari beint til bónda og síðan beint til neytenda og reynum að gera síðan eitthvað minna úr milliliðunum. Sóknarfærin eru gríðarleg í (Forseti hringir.) landbúnaði og ekki síst í grænmetinu og við erum að mínu mati bara rétt að byrja.