tækifæri garðyrkjunnar.
Herra forseti. Ef neysla allra jarðarbúa væri í samræmi við neyslu Íslendinga þyrfti 27 jarðir til að standa undir henni. Sú staðreynd að kolefnisspor Íslendinga er tvöfalt stærra en annarra Evrópubúa kemur mörgum á óvart. Við verðum að breyta neysluvenjum okkar ef við ætlum að ná einhverjum árangri í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Til að eiga einhverja möguleika á því að ná árangri í þessu stærsta sameiginlega verkefni mannkyns þarf vilja almennings til breytinga og pólitískan vilja og kjark stjórnvalda.
Ég segi því enn og aftur að við verðum að spýta í lófana og snúa slæmri þróun við og endurskoða matarvenjur okkar og framleiðslu matvæla. Styrkleikar okkar til aukinnar grænmetisframleiðslu eru miklir í formi endurnýjanlegrar raforku, jarðvarma, kalds lofts og fárra padda. Við ættum að láta tækniþekkingu vinna með okkur til að auka og auðvelda grænmetisframleiðslu hér á landi og hafa hana að mestu innan dyra.
Að meðaltali er helmingsmunur á losun innflutts grænmetis og þess íslenska, íslenskri framleiðslu í hag. Þetta eitt sýnir að mikill umhverfisávinningur væri af aukinni innlendri framleiðslu á grænmeti. Það er þörf á og hagur af því að ýta undir íslenska grænmetisframleiðslu. Það mætti gera með ýmsum hætti, svo sem með leiðum til að nýta jarðhitann betur, hvetja til nýsköpunarstyrkja, með styrkjum til kaupa á betri búnaði, sparneytnari lýsingu og hækka gróðurhúsin sem fyrir eru svo að afköstin verði meiri og gera styrki til raforkuflutninga markvissari og fyrirsjáanlegri. Hvetja þarf einnig unga bændur til að hefja framleiðslu með lagningu eins konar kynslóðabrúar frá þeim eldri til þeirra sem yngri eru.
Herra forseti. Nýtum styrkleika okkar (Forseti hringir.) í grænni matvælaframleiðslu. Það borgar sig.