149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

tækifæri garðyrkjunnar.

[17:12]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka þá góðu umræðu sem hér hefur farið fram. Það er mjög góður andi í þessari umræðu, klárlega frjór jarðvegur til að láta verkin tala. Ég var ánægður með það sem ráðherra sagði í upphafsorðum sínum um framtíðina og þá bjartsýni sem yfir hennar orðum ríkti, að mér fannst. Ég er tilbúinn að bjóða henni upp í dans. Við þurfum samstarf til að taka á í þessum málum.

Það er greinilega mikill hugur í þingmönnum og við þurfum að fara í markaðshvetjandi aðgerðir til að efla garðyrkjuna, gera hana samkeppnishæfa og að hún framleiði þá vöru og alla þá vöru sem við Íslendingar þurfum á að halda. Það er klárlega kallað eftir því í þessum sal, í þessum umræðum.

Mér finnst að tækifærið sé akkúrat í dag. Við þurfum að nýta þá krafta sem landið býður upp á. Við erum með ódýra orku. Við erum með frjósaman jarðveg og það þarf að aðstoða garðyrkjuna til að eflast og dafna og verða sú græna bylting sem við köllum eftir. Kolefnissporið er ótrúlega lágt. Hér hefur verið bent á marga þætti sem við þurfum að laga. Það gerum við með sameiginlegu átaki. Ég segi eins og ég sagði í ræðu minni áðan: Lífið er núna. Setjum okkur hugrökk markmið. Gerum sjálfbært grænmetislandið Ísland fyrir árið 2025. Það er gott markmið.