149. löggjafarþing — 106. fundur,  20. maí 2019.

tækifæri garðyrkjunnar.

[17:14]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni og fleirum að þetta hefur verið mjög lifandi og skemmtileg umræða með alls konar sjónarhornum og hugmyndum. Mig langaði að nefna örstutt varðandi jöfnun á dreifikostnaði í dreifbýli og þéttbýli. Það er til staðar, eins og við vitum, ákveðið jöfnunarkerfi, svokallað jöfnunargjald, en eins og ég hef komið inn á á Alþingi að undanförnu verðum við einfaldlega að gera betur í að jafna þann mun sem er á dreifikostnaði raforku í dreifbýli og þéttbýli. Það er til sérstakrar skoðunar í ráðuneytinu í samvinnu við Orkustofnun.

Varðandi áhrif þess á garðyrkjubændur er það því miður nokkuð snúið mál þar sem garðyrkjubændur um landið eru sumir í skilgreindu þéttbýli og aðrir í skilgreindu dreifbýli. Það er ekki svo að allir garðyrkjubændur séu í dreifbýli eins og einhverjir kynnu að ætla. Í því samhengi má nefna að með reglugerðarbreytingu frá árinu 2012 var komið til móts við óskir garðyrkjubænda um skilgreiningu á þéttbýli og dreifbýli sem leiddi til aukins möguleika garðyrkjubænda á að vera á hagstæðari gjaldskrá dreifiveitna. Að sama skapi má nefna að dreifiveitur hafa að undanförnu í auknum mæli reynt að sérsníða gjaldskrár sínar innan ramma raforkulaga að þörfum ólíkra viðskiptavina sinna, m.a. garðyrkjubænda. Það er vel.

Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kom aðeins inn á upprunamerkingar og það er auðvitað algert lykilatriði og er í forgangi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur sett það í forgang í samvinnu við atvinnulífið, Bændasamtökin, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Neytendasamtökin, ef ég man rétt. Það skiptir mjög miklu máli.

Hér var nefnt að við þyrftum að setja okkur grænmetisstefnu. Ég ætla að toppa það og segja að við þurfum að setja okkur matvælastefnu og að henni er unnið. Það sem mér finnst áhugavert við þessa umræðuna er að hún snýst um neytendamál, byggðamál, atvinnumál, orkumál, umhverfismál, nýsköpunarmál og hún snertir það auðvitað líka að mjög miklu leyti að hjartað slær með ferðaþjónustunni. Það eru mjög margir bændur í ferðaþjónustu og hægt að tengja þetta að miklu leyti saman. Við þekkjum dæmi eins og Friðheima og Flúðasveppi.

Þetta er svo vel (Forseti hringir.) tengt saman. Það eru óteljandi tækifæri í því fyrir okkur. Þetta snýst um samhent átak en svo (Forseti hringir.) líka um að umhverfið sé þannig að það sé hvati til þess að hlaupa af stað og gera frábæra hluti.