ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Það var áhugavert að fylgjast með úr nokkurri fjarlægð umræðunni sem fór hér fram fyrir helgi. Margt áhugavert kom fram í henni, bæði frá þeim sem eru lítt hrifnir af málinu og líka þeim sem telja eðlilegt að klára þetta mál.
Ég tek undir nefndarálit minni hlutans í máli þessu. Ég byggi mína skoðun á málinu fyrst og fremst á því að ég held að við þurfum einfaldlega að segja núna að það sé nóg komið. Við höfum verið að innleiða orkutilskipanir frá Evrópusambandinu nú um skeið. Við höfum reynt að fá undanþágur frá þeim. Við höfum óskað eftir ákveðnum breytingum og aðlögunum en gengið illa að fá þær. Ég get farið yfir þær síðar ef þörf er á því.
Þegar við hugsum um það sem er að gerast með þessu erum við að stíga enn eitt skrefið í því að aðlaga íslenska raforkumarkaðinn að evrópska raforkumarkaðnum. Við erum að stíga enn eitt skrefið í því að okkar litli raforkumarkaður verði einsleitur og verði eins og sá evrópski stóri, sem er allur samtengdur. Við erum líka að stíga ákveðið skref í því að viðurkenna, sumir segja með beinum en aðrir óbeinum hætti, að stofnun Evrópusambandsins, svokölluð ACER-stofnun, hafi ákveðið vald á Íslandi, beint eða óbeint.
Ég hef mestar áhyggjur af því að þegar við höldum áfram í þessari vegferð — höldum áfram að innleiða orkutilskipanir, orkupakka fjögur, fimm eða hvað þeir heita nú í framhaldinu — þá verðum við smám saman komin á þann stað að gefa frá okkur ákveðin völd eða ákveðnar heimildir sem við ættum að hafa sjálf en ekki alþjóðleg stofnun.
Hér er töluvert rætt um fyrirvara og hefur hann verið kallaður lagalegur fyrirvari. Nú virðist hins vegar komið í ljós að hinn svokallaði lagalegi fyrirvari mun líta dagsins ljós í reglugerð þegar hún verður sett fram. Á það hefur verið bent í álitsgerðum þar sem farið hefur verið djúpt ofan í hvað þetta þýðir, eins og t.d. álitsgerð Eyjólfs Ármannssonar, að lagalegur fyrirvari eða heimild ríkja til að setja lagalegan fyrirvara finnist ekki í EES-samningnum. Þess vegna varpa ég þeirri spurningu fram, ef einhver getur síðar svarað því: Hvar er slíkt heimilt í samningnum, að setja slíka fyrirvara, og hefur slíkt í raun eitthvert gildi?
Fyrir skömmu — ég leyfi mér að segja skömmu, því að ég er ekki með nákvæma dagsetningu á því — velti fræðimaður upp ýmsum spurningum. Ég er ekki að segja að þetta sé alveg svart og hvítt allt saman en ef einhver óvissa er til staðar finnst mér að við þurfum í það minnsta að skoða málið betur. Við eigum alla vega að láta Ísland njóta vafans í þessu.
Maður að nafni Max Baumgart, doktorsnemi við háskólann í Köln, var að kenna við Háskólann á Akureyri, og flutti þar erindi. Max þessi Baumgart hefur komið víða við. Hann er doktorsnemi við háskólann í Köln í Þýskalandi og í Basel í Sviss, hann er rannsakandi á sviði orkumála við háskólann í Köln og í háskólanum St. Gallen í Sviss o.s.frv. — ég ætla ekki að eyða tímanum í telja það allt saman upp. Í erindinu sem Max Baumgart flutti á Akureyri velti hann því upp og taldi að hægt væri að færa fyrir því rök að ákvæðið í EES-samningnum, hið frjálsa flæði vöru og þjónustuviðskipta eða vöruviðskipta, gerði það að verkum að túlka mætti samninginn um EES á þann veg að Íslandi bæri að tengjast þessum markaði.
Ég geri mér grein fyrir því að mjög margir hafa mælt gegn þessu og sagt að þetta geti ekki átt við og til eru lögfræðiálit þar sem segir að þetta geti ekki átt við. Ég er bara að benda á að hér er einn aðili, lögfræðingur eða fræðimaður, sem leggur þá túlkun til að þetta geti verið með þessum hætti. Því segi ég að það sé betra að eyða þeirri óvissu en að hafa hana einhvern veginn hangandi yfir okkur. Ég fæ ekki séð að henni sé eytt í þeim málatilbúnaði sem er hér lagður fyrir okkur.
Þróunin innan Evrópu hefur verið sú að miðstýringin hefur aukist mjög mikið. Evrópusambandið, þ.e. miðstýringarapparatið í Brussel, hefur lagt mikla áherslu á að gera þennan markað einsleitari, auka samkeppni, sem er að sjálfsögðu oft af því góða, hefur gripið til ýmissa ráða til að ýta slíkum aðgerðum af stað, m.a. sektað stórfyrirtæki, ríkisfyrirtæki, t.d. í Þýskalandi — einokun þeirra gerði að verkum að fyrirtækin voru sektuð fyrir að standa í vegi fyrir samkeppni.
Fyrir rúmlega ári kom í ljós að frönsk stjórnvöld áttu í einhvers konar baktjaldaviðræðum við Evrópusambandið um að bregðast við kröfu þess um að einkavæða frönsku ríkisvatnsorkuverin. Evrópusambandið taldi að til þess að fá þessa einsleitni og fá þessa samkeppni af stað þyrfti franska ríkið að gefa þetta frá sér og búa til samkeppni. Þessu mótmæltu verkalýðsfélög harkalega og er í raun óljóst hvernig þetta fór eða ég hef alla vega ekki upplýsingar um hvernig þetta endaði. Í það minnsta voru frönsk stjórnvöld að reyna að bregðast við kröfum Evrópusambandsins.
Allt finnst mér þetta vera í sömu átt. Það eru settar upp kröfur sem aðilar að orkusambandinu þurfa að standa við. Ísland fær undanþágur frá gas- og jarðgastilskipuninni vegna þess að það er ekki tengt Evrópu með jarðgas. Ég velti því fyrir mér hvers vegna í ósköpunum við fáum þá ekki undanþágu frá raforkumarkaðnum eða öllu þessu raforkubrölti þar sem við erum ekki heldur tengd Evrópu með rafmagn eins og staðan er í dag. Hvers vegna fáum við ekki undanþágur frá því sem eftir var óskað?
Nú hefur margt gerst og mikið vatn runnið til sjávar frá því að viðræður áttu sér stað við Evrópusambandið um hvort undanþágur fengjust, þingið er búið að fjalla um það og í álitum bæði atvinnuveganefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eru slegnir ákveðnir varnaglar og sagt að gæta þurfi vel að fullveldisframsalsmálum og öllu þessu sem við erum alltaf að tala um. Ég held að ég fari ekki rangt með þó að ég segi að Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst hafi komist að því að það sé skásta lausnin að vísa þessu aftur til EES-nefndarinnar. Annar leggur hið sama til og það er lögmaðurinn Eyjólfur Ármannsson sem færir fyrir því ágætisrök í sinni umsögn hvers vegna það ætti að gera.
Ég verð að segja að ég hef aðeins áhyggjur af tali um að verið sé að stofna EES-samningnum í hættu. Við gerum það að mínu mati ekki nema með því einmitt að vera að tala á þeim nótum, að teikna upp þá mynd að við höfum ekkert val annað en að taka við þeim gerðum sem koma frá Evrópusambandinu. Við höfum rétt að skjóta slíkum málum, ef við teljum þess þurfa, til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Það er hvergi útskýrt, svo að ég viti til, í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að það sé skilgreint sem einhvers konar neyðarréttur. Ég hef alla vega ekki séð það og man ekki eftir að hafa heyrt það. Það er hins vegar skrifað þarna inn að þegar sú staða er uppi að ríki telji sig ekki geta gengið frá eða innleitt mál með þeim hætti sem ætlast er til sé hægt að vísa því í þennan farveg. Ég held hreinlega að það væri það allra besta. Það er í raun skrifað hvaða ferli tekur þá við. Það á að leiða til ákveðinnar niðurstöðu og auðvitað myndi maður óska eftir því að sú niðurstaða yrði að við fengjum undanþágu. Ég held að við eigum að geta rökstudd það jafnvel enn betur í dag en við gátum fyrr.
Það sem maður hefur áhyggjur af er að ástæðan fyrir því að menn vilja ekki veita okkur undanþágu frá raforkunni, líkt og gasinu, sé að í langri framtíð sjái menn vissulega möguleikana á því að Ísland geti orðið mikilvægur hlekkur inn á evrópskan raforkumarkað með útflutningi á rafmagni. Það getur vel verið að það verði einhvern tímann en það er mikilvægt að það sé algerlega á íslenskum forsendum og undir íslenskum lögum og reglum og öllu slíku og að við ráðum þá bæði hvernig dreift er, hvernig verðlagning er og annað.
Margir geta hugsanlega velt því upp hvort ekki sé orðið of seint að stinga niður fæti í þessu. Það eru ágæt rök. En þá veltir maður því fyrir sér hvort að það verði þá ekki enn þá meira of seint þegar við erum búin að innleiða þetta. Þegar við erum komin í orkupakka fjögur eða fimm, eða hvað þeir verða nú margir, erum við þá ekki algjörlega búin að afsala okkur því að geta sagt: Heyrðu, við verðum að vísa þessu til sameiginlegu EES-nefndarinnar, þetta er aðeins of langt gengið? Ég held því að það sé betra að gera það núna.
Það hefur komið fram í minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu að ein af rökunum sem komu fram hjá Evrópusambandinu fyrir því að veita þessar undanþágur var að við hefðum innleitt orkupakka tvö eða aðra tilskipun svo glæsilega, í raun umfram það sem við áttum að gera; og líka að Ísland sé ekki lengur lítið einangrað raforkukerfi heldur stórt raforkukerfi. Það breytir því ekki að einangrunin er til staðar. Það hefur ekki gerst neitt nýtt í því.
Menn hafa gert aðeins grín að því hér í ræðum að það sé eitthvað óljóst hvort Ísland sé eyja eða ekki. En ég held að við hljótum öll að geta orðið sammála um að þetta blessaða land okkar er eyja. Mér finnst erfitt að ná utan um það hvers vegna við getum ekki sent málið til EES-nefndarinnar. Mér finnst það í raun besta lausnin. Ég held að það sé besta lausnin fyrir okkur sem höfum efasemdir, þá sem eru fylgjandi þessu, til þess að setja málið í einhvern sæmilegan farveg.
Ég man ekki eftir því að margir hafi haldið því fram að Evrópusambandið muni með einhverjum hætti eignast fallvötnin eða jarðhitann á Íslandi. Áhrifin á stjórnun og nýtingu eru áhyggjuefni og ég held að það sé óhætt að hafa þær áhyggjur, ekki síst í ljósi þess að við erum að innleiða og taka yfir skuldbindingar frá stofnunum sem munu hafa með þetta að gera. Ég held líka að það myndi kannski róa mannskapinn, í það minnsta væri það gott, ef þingið gæti fengið að sjá drög að hinum svokallaða lagalega fyrirvara sem á að setja í reglugerð þegar búið er að samþykkja þetta, hvernig það er orðað, hvernig það er sett inn. Það hefur komið fram frá upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins í frétt að það er nákvæmlega þannig sem þetta verður gert.
Sumir hafa sagt, sem er reyndar rétt, að margt af þeim góðu lögum, t.d. varðandi neytendavernd og ýmislegt annað, sem við höfum innleitt á Íslandi, hafi komið frá Evrópu og Evrópusambandinu. En það er ekkert sem kemur í veg fyrir að við tökum inn í íslenskan rétt góð lög eða góðan árangur annarra, hvort sem það er frá Þýskalandi eða annars staðar frá, ef okkur sýnist svo. Ef við sjáum lög sem eru að virka vel í einhverju landi getum við tekið þau upp og heimfært þau upp á Ísland. En Evrópusambandið hefur staðið sig mjög vel í ákveðnum hlutum og það hefur þar af leiðandi gagnast okkur ljómandi vel, eins og t.d. þegar kemur að neytendaréttinum. Ég dreg ekki dul á það.
Ég hef sagt og ætla að leyfa mér að segja það einu sinni enn — það verður þá bara enn og aftur snúið út úr því fyrir mér — að við eigum ekki að vera hrædd við að skoða EES-samninginn. Ég er ekki að segja að við eigum að segja honum upp. Við eigum hins vegar að vera óhrædd að velta upp kostum og göllum; hvort það sé þannig að við eigum að reyna að ná fram einhvers konar breytingum á honum, hvort við eigum að reyna að ná einhverjum hlutum út úr samningnum eða viljum við bæta einhverju í hann: Við eigum ekkert að vera hrædd við að fara yfir málið á þennan veg. Það verður þá að gera það með gagnrýnum hætti, þ.e. að rýna samninginn sér til gagns, ekki að setja starfshóp af stað sem nánast er vitað fyrir fram hvað kemur út úr. Við eigum að setjast niður og segja: Þetta er samningur sem gildir á tvo vegu. Þetta er samningur tveggja aðila, reyndar fleiri, vitanlega, en Ísland er einn aðili að þessum samningi, og við eigum að þora að velta þessum hlutum fyrir okkur.
Herra forseti. Ég vil nefna eitt sem bent hefur verið á en það er túlkun a.m.k. eins lögmanns eða fræðimanns sem segir í sínu áliti:
„Virðist því eiga að innleiða í íslenskan rétt mikilvæga þjóðaréttarlega skuldbindingu varðandi helstu náttúruauðlind íslands með reglugerð en endurskoða síðar — ef sæstrengur verður lagður — lagagrundvöll þeirrar reglugerðar og jafnframt að skoða þá hvort innleiðingin samræmist stjórnarskrá Íslands.“
Raunar segir lögmaðurinn að þarna megi sjá að stjórnvöld séu í einhverjum vafa um þennan lagagrundvöll fyrir eigin innleiðingar. Ég held að það sé einfaldlega þannig að það þurfi að fá skýrari mynd af málinu áður en það er tekið lengra. Ég held að það myndi í það minnsta gera málið ögn ljósara fyrir þá sem eru að reyna að kynna sér þetta og hafa áhyggjur af því hvert þetta leiði okkur.
Herra forseti. Það er orðið ljóst að töluverður ágreiningur er um það hvort við eigum að innleiða þetta eða stíga skref með þeim hætti sem hér er lagt til. Það er ágreiningur hér á þingi, þó að trúlega sé töluverður meiri hluti fyrir því að klára málið. Ég velti fyrir mér hvort ekki sé líka lag að hlusta á þær gagnrýnisraddir sem koma utan frá, í raun bara til að róa fólk og fá botn í málið. Ég er ekki að segja að málið muni breytast með einhverjum hætti en hins vegar er eðlilegt að nýta þann farveg sem við höfum því að þetta er mál sem ég held að sé mjög mikilvægt að ná vel utan um.
Ég hef ekkert fjallað um þá staðreynd, sem mér finnst svolítið sérstök, að hér á þingi eru flokkar sem á árum áður lýstu sig mjög andvíga upptöku orkutilskipunarinnar í íslenskan rétt, m.a. vegna þeirrar markaðsvæðingar sem þar er á ferð, en taka nú að sér að keyra málið áfram. Markmiðið með öllum þessum gerðum Evrópusambandsins er auðvitað að gera orku, alveg sama hvað hún heitir, að enn þá meiri markaðsvöru en hún hefur verið og er í dag. Því þurfa menn að spyrja sig sem hafa ekki verið fylgjandi hingað til: Af hverju núna? Er það vegna þess að við erum komin of langt í ferlinu og getum ekki haft áhrif á það hvort það sama eigi við um Ísland og aðra? Eða hefur orðið einhver breyting á skoðunum, sem er að sjálfsögðu alltaf heimil?
Tími minn er á þrotum, herra forseti. Mun ég þá láta þessu lokið í bili en reikna með að koma hingað aftur.